09.01.04 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Paul Jones til Liverpool. (Staðfest)

Liverpool hafa samið við Southampton um að fá markvörðinn Paul Jones að láni næst mánuðinn. Jones hefur ekki byrjað leik með Southampton síðan 1. nóvember en Antti Niemi er aðalmarkvörður. Jones er aðalmarkvörður landsliðs Wales þrátt fyrir að vera á bekknum hjá Southampton. Hann er 36 ára gamall. Jones mun taka stöðuna í marki Liverpool á meðan Jerzy Dudek og Chris Kirkland ná sér af meiðslum sínum.
Hann mun leika í treyju númer 12 hjá félaginu en enn er ekki ljóst hvort hann verði í byrjunarliðinu gegn Aston Villa á morgun en þó er það líklegt, ef ekki verður það Patrice Luzi sem verður í marki.
Jones sagði: ,,Þetta er draumur. Þetta hafa verið ótrúlegir 24 tímar hjá mér. Ég fékk símtal frá Gordon Strachan í gær og hann sagði mér að Liverpool hefði áhuga og bað mig að hugsa málið. Ég tók mér ekki langan tíma til að ákveða að ég vildi koma hingað. Samningurinn er aðeins til eins mánaðar en fyrir mér er þetta mánuður með einu af bestu félögum í Evrópu, ef ekki í heiminum. Þetta var of gott tækifæri fyrir mig til að hafna og ég veit að ég hefði séð eftir því allt mitt líf ef ég hefði ekki komið hingað. Hvort sem ég spila einn leik, tvo leiki eða hvað sem er, þá á ég möguleika á að spila hér. Ég hef verið stuðningsmaður Liverpool allt mitt líf svo þetta er algjör draumur fyrir mig. Ég ólst upp í Shrewsbury með mörgum Liverpool stuðningsmönnum og við horfðum alltaf á leiki liðsins í sjónvarpi eða hlustuðum á útvarp. ég hef alltaf fylgst með úrslitum og notið þess að spila á Anfield. ÞAð verður gott að hafa stuðningmennina með mér núna en ekki á móti."