09.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Miller fer til Man Utd (Staðfest)




Manchester United hefur staðfest þær fréttir sem komu í gær að liðið hefði samið við miðjumanninn Liam Miller hjá Glasgow Celtic og mun hann koma til Englandsmeistarana næsta sumar. Miller sem er 22 ára Íri hafnaði nýjum samningi við Celtic og mun hann ganga til liðs við Man Utd 1.júlí. Miller hefur komið gríðarlega sterkur inn hjá Celtic á tímabilinu og vaxið með hverjum leiknum.
Miller sagði "Þegar að ég var lítill strákur studdi ég alltaf tvö lið, Celtic og Manchester United. Ég er stoltur yfir því að hafa fengið að spila með Celtic í sex ár en nú hlakkar mig til að ganga til liðs við Manchester United. Þetta er mjög spennandi og þetta er áskorun að fá að spila fyrir eitt besta lið í heimi."
Sir Alex Ferguson var einnig í skýjunum yfir að fá Miller en núverandi liðsfélagi hans hjá Celtic, Henrik Larsson hefur sagt að Miller sé eitt mesta efni sem að hann hafi séð á sínum ferli.
Sir Alex Ferguson var einnig í skýjunum yfir að fá Miller en núverandi liðsfélagi hans hjá Celtic, Henrik Larsson hefur sagt að Miller sé eitt mesta efni sem að hann hafi séð á sínum ferli.
