09.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Patrik Andersson til Malmö (Staðfest)




Sænski varnarmaðurinn sterki Patrik Andersson hefur gengið til liðs við Malmö í heimalandinu. Andersson sem er 32 ára fékk sig lausan frá Barcelona í síðasta mánuði en hann hefur átt við þrálát mjaðmarmeiðsli að stríða síðan að hann kom til Barca frá Bayern Munchen árið 2001. Andersson skrifaði undir eins árs samning við Malmö en félagið lenti í þriðja sæti í sænsku Allvenskunni á seinustu leiktíð. Forráðamenn Malmö eru í skýjunum yfir því að fá Andersson enda reynslumikill en hann á að baki 96 landsleiki fyrir Svía.
