09.01.10 - 12:01
Hafliði Breiðfjörð
Íris Dóra í Fylki (Staðfest)

Íris Dóra í búningi Fylkis eftir undirskriftina við félagið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Ég tel mig geta bætt mig mjög mikið sem leikmann og ég hef mjög mikinn metnað til að spila í úrvalsdeildinni,\" sagði Íris Dóra Snorradóttir sem í gær gekk til liðs við lið Fylkis sem leikur í efstu deild frá 1. deildarliði HK/Víkings.
,,Mig langaði að taka skrefið ofar og fara og spila í úrvalsdeildinni. Mér leist mjög vel á Fylki,þetta er skemmtilegur hópur og stefnan er klárlega sett á toppbaráttu í sumar. ég mætti á 2. flokks æfingu og eftir hana talaði Bubbi (Björn Kristinn Björnsson þjálfari) við mig. Það er vel haldið utan um þetta lið,\" sagði Íris sem var einn besti leikmaður HK/Víkings í fyrrasumar en mætir nú mun meiri samkeppni hjá Fylki.
,,Ég held að ég sé alveg tilbúin í það. Ég hef mikinn metnað fyrir þessu og langar að ná lengra. Ég spila frammi eða á kantinum og ætla að berjast fyrir því að fá sæti í liðinu. Ég geri mitt besta til að komast í byrjunarliðið í sumar.\"
Íris Dóra hóf meistaraflokksferil sinn á síðasta ári og vakti strax mikla athygli enda frammistaða hennar með liðinu frábær. Hún var markahæsti leikmaður liðsins með 11 mörk í 12 leikjum í 1. deildinni.
,,Ég var markahæst í liðinu og skoraði 11 mörk og gekk mjög vel síðasta sumar.Það voru mjög mikil vonbrigði að liðinu hafi ekki tekist að fara upp, það var klárt markmið að gera það en það tókst ekki. Okkur gekk mjög vel en náðum ekki að klára á endasprettinum,\" sagði Íris sem kveður nú uppeldisfélag sitt.
,,Ég er uppalinn HK-ingur og það er erfitt að fara frá þeim. Þó það sé erfitt að fara fannst mér best að gera það á þessum tímapunkti. Það eru margar HK stelpur úr meistaraflokki HK/Víkings sem eru að fara núna í úrvaldelidarlið.\"
Íris Dóra á að baki einn leik með U19 ára landsliði Íslands. Hún er annar leikmaðurinn sem kemur til Fylkis frá síðustu leiktíð, áður hafði Fjóla Dröfn Friðriksdóttir komið frá KR.