Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 09. febrúar 2021 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hin hliðin - Sólveig Larsen (Valur)
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Sóley María Steinarsdóttir
Sóley María Steinarsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elín Metta Jensen
Elín Metta Jensen
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sólveig gekk í desember í raðir Vals frá uppeldisfélagi sínu Breiðabliki. Hún hefur einnig leikið með HK/Víkingi, Augnablik og Fylki á sínum ferli.

Hún á að baki 32 unglingalandsleiki og 44 leiki í efstu deild. Hún er þessa stunda í háskólanámi við University of South Florida. Í dag sýnir hún á sér hina hliðina.

Fullt nafn: Sólveig Jóhannesdóttir Larsen

Gælunafn: Solla

Aldur: 20 ára

Hjúskaparstaða: föstu

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: 2015 með Augnablik

Uppáhalds drykkur: Íslenska vatnið

Uppáhalds matsölustaður: Pure Deli

Hvernig bíl áttu: Rafmagnshlaupahjól, umhverfisvænna.

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Frasier

Uppáhalds tónlistarmaður: Summer Walker og Bryson Tiller

Uppáhalds hlaðvarp: Tvíhöfði

Fyndnasti Íslendingurinn: Jón Gnarr

Hvað viltu í bragðarefinn þinn: Súkkulaði, jarðarber og bláber

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: “umm leyfðu mer að hugsa jaa”

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: FH

Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Marta da Silva

Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Daði Rafnsson

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt:

Sætasti sigurinn: Sigur á móti Grindavík með Augnablik 2015

Mestu vonbrigðin: Brotna í bakinu á trampólíni 2019 og vera meidd í 6 mánuði

Uppáhalds lið í enska: Liverpool

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Sóley María Steinarsdóttir

Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Áslaug Munda

Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: Elín Metta

Hver er mesti höstlerinn í liðinu: kemst að því í sumar þegar ég kynnist liðinu betur

Uppáhalds staður á Íslandi: 200 Kóp

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik:

Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: nei, en ég trúi því að kaffi fyrir leik sé must

Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: ekki þannig, en hef gaman af borðtennis.

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: adidas predator.

Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: landafræði

Vandræðalegasta augnablik: mjög mörg, erfitt að velja úr

Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju:

Sturluð staðreynd um sjálfan þig: get talað afturábak

Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju:

Hverju laugstu síðast: að það hafi verið tæknivandamál með að fara í tutoring tíma en ég bara gleymdi honum.

Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: taktík daginn fyrir leik

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Ég myndi spyrja Neil Armstrong hvort hann hafi í alvörunni farið til tunglsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner