Fotbolti.net
09.02.22 - 23:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Milos reyndi að fá Salquist - „Var leiður og vonsvikinn"

Salquist er fyrrum leikmaður Fjölnis.

Salquist er fyrrum leikmaður Fjölnis.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Milos Milojevic, þjálfari Malmö, reyndi að fá varnarmanninn Tobias Salquist til félagsins áður en félagaskiptaglugginn lokaði um síðustu mánaðarmót.
Hinn 26 ára gamli Salquist var á láni hjá Fjölni frá danska félaginu Silkeborg árið 2016. Hann skoraði tvö mörk í 21 leik í Pepsi-deildinni og þótti standa sig vel.

Eftir tímabilið sýndi FH áhuga á að fá Tobias í sínar raðir en aldrei varð þó af þeim félagaskiptum.

Hann hefur spilað í Danmörku, Belgíu og Noregi eftir að hann fór frá Íslandi. Hann var einn besti varnarmaður norsku úrvalsdeildarinnar er hann lék með Lilleström frá 2019 til 2020. Hann er núna kominn aftur til Danmerkur og leikur þar með Silkeborg.

Hann hefur verið að standa sig vel þar og vildi Malmö, sem er sigursælasta félag Svíþjóðar, fá hann í sínar raðir. Milos tók nýverið við Malmö, en hann var að þjálfa á Íslandi þegar Salquist lék hér á landi. Samkvæmt Bold í Danmörku, þá bauð Malmö rúmlega 800 þúsund evrur í leikmanninn, eða um 115 milljónir íslenskra króna.

„Þetta var risastórt tækifæri fyrir mig og því miður gekk það ekki upp. Þetta er hluti af fótbolta... þú segir kannski bara nei við þessu ef þú spilar fyrir stærsta félagið í Danmörku. Það er möguleiki að ég fái aldrei svona tækifæri aftur," segir Salquist við Bold.

Hann segist þó vera búinn að jafna sig og ætlar að hjálpa Silkeborg áfram.

„Það er gott að vera í Silkeborg, en ég var leiður og vonsvikinn þegar ég frétti af þessu. Núna lít ég hins vegar bara fram veginn. Við verðum að standa okkur þegar deildin hefst aftur."

Leikmaðurinn er með samning við Silkeborg til 2025.
Milos er þjálfari Malmö. Hann þjálfaði áður á Íslandi.

Milos er þjálfari Malmö. Hann þjálfaði áður á Íslandi.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.