Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 09. mars 2021 05:55
Victor Pálsson
Meistaradeildin í dag - Nær Juventus að koma til baka?
Mynd: Getty Images
Það er allt undir í Meistaradeild Evrópu í kvöld en tveir leikir eru spilaðir í 16-liða úrslitum keppninnar.

Juventus þarf á sigri að halda gegn Porto á heimavelli sínum, Allianz Stadium, eftir að hafa tapað fyrri viðureigninni, 2-1.

Porto er til alls líklegt eftir frábæran sigur í fyrri leiknum en ljóst er að verkefnið verður erfiðara í kvöld.

Hinn leikurinn er viðureign Dortmund og Sevilla en það fyrrnefnda vann fyrri leikinn með þremur mörkum gegn tveimur.

Dortmund vann þann leik á útivelli og spilar við spænska liðið á heimavelli í kvöld.

þriðjudagur, 9. mars

20:00 Dortmund - Sevilla
20:00 Juventus - Porto
Athugasemdir
banner
banner
banner