09.05.12 - 07:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Bakaye Traore til AC Milan (Staðfest)

AC Milan fær liðstyrk.

Mynd: Getty Images

AC Milan fær liðstyrk.

Mynd: Getty Images
Bakaye Traore, miðjumaður Nancy í Frakklandi, samþykkti í gær að ganga til liðs við AC Milan í sumar.
Samningur hans rennur út í sumar og fer hann því á frjálsri sölu til AC Milan. Hann hefur verið hjá Nancy síðan 2009, leikið 71 leik og skorað 11 mörk.

Traore, 27 ára frá Malí, er hæstánægður með félagaskiptin en veit veit að hann þarf að berjast fyrir sæti sínu í sterku Mílanóliði.
,,Ég er mjög ánægður að hafa skrifað undir hjá stóru félagi sem á nokkra af bestu leikmönnum heims,“ sagði Traore.
,,Ég vona að allt fari vel og að þetta sé skref fram á við. Ég óttast enga samkeppni. Hver leikmaður sem vill bæta sig má ekki vera hræddur.“
,,Ef ég stend mig vel þá veit ég að ég mun fá mín tækifæri, eins og mér var sagt.“

Heimild: Soccerway