09.05.12 - 16:45
Hafliði Breiðfjörð
Sarah McFadden í FH (Staðfest)

Sarah McFadden í leik með Grindavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sarah McFadden í leik með Grindavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH fékk í dag góðan liðsstyrk fyrir Pepsi-deild kvenna í sumar þegar norður írska landsliðskonana Sarah McFadden gekk til liðs við félagið.
Sarah McFadden þekkir vel til á Íslandi þar sem hún hefur leikið með Grindavík og Fylki undanfarin ár.
Hún spilaði fyrstu þrjá leiki síðustu leiktíðar með Grindavík í fyrra en hélt svo utan til náms í Newcastle og spilaði því ekkert meira með liðinu. Sumarið á undan hafði hún spilað 20 leiki í deild og bikar með Grindavík og skorað fjögur mörk.
Hún spilaði fyrst hér á landi með liði Fylkis sumarið 2008 en gekk svo til liðs við GRV sem síðar varð Grindavík.
Sarah McFadden er fjórði leikmaðurinn sem FH fær til liðs við sig í vetur. Hugrún Elvarsdóttir kom frá Stjörnunni, Sara Hrund Helgadóttir frá Grindavík og Sólveig Þórarinsdóttir úr HK/Víking. Þá kemur Guðrún Bentína Frímannsdóttir inn í liðið. Hún hafði komið til FH frá Grindavík fyrir ári en missti af síðustu leiktíð vegna meiðsla. Einnig tekur Margrét Sveinsdóttir aftur fram skóna eftir frí í fyrra.
FH varð fyrir áfalli á dögunum þegar fyrirliðinn Berglind Arnardóttir meiddist á hné og verður lengi frá keppni.