09.05.12 - 15:24
Magnús Már Einarsson
Sverrir Garðarsson í Hauka (Staðfest)

Sverrir Garðarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Haukar hafa fengið góðan liðsstyrk fyrir fyrstu deildina í sumar en Sverrir Garðarsson hefur gengið til liðs við félagið.
Sverrir gekk í vetur í raðir ÍBV og lék með liðinu í Lengjubikarnum. Í síðasta mánuði yfirgaf hann herbúðir Eyjamanna og síðan þá hefur hann æft með Haukum og leikið æfingaleiki með liðinu.
Sverrir hefur núna fengið leikheimild með Haukum og hann gæti leikið með liðinu gegn Tindastóli í fyrstu umferðinni í fyrstu deildinni á laugardag.
Hjá Haukum mun Sverrir berjast við Val Fannar Gíslason og Guðmund Viðar Mete um stöðu í hjarta varnarinnar en sá síðastnefndi hefur verið frá keppni að undanförnu vegna meiðsla.
Í maí 2010 var tilkynnt að Sverrir væri hættur knattspyrnuiðkun vegna höfuðmeiðsla. Um sumarið fór hann síðan að æfa handbolta með FH. Hann tók knattspyrnuskóna aftur upp fyrir sumarið 2011 en hann fékk þá sérútbúinn hjálm.
Hann spilaði þó ekkert í fyrrasumar þar sem hann meiddist í æfingaferð FH-inga í Portúgal og þurfti að fara í aðgerð á liðþófa.
Sverrir er uppalinn hjá FH en hefur einnig leikið með GIF Sundsvall í Svíþjóð.