09.05.12 - 19:31
Ívan Guðjón Baldursson
Rene Adler farinn til Hamburg (Staðfest)

Rene Adler varði mark þýska landsliðsins í tíu leikjum.

Mynd: Getty Images

Rene Adler, 27 ára markvörður sem á 10 landsleiki með þýska landsliðinu að baki, hefur yfirgefið Bayer Leverkusen á frjálsri sölu og er búinn að semja við Hamburg.
Adler var byrjunarliðsmarkvörður Leverkusen lengi en síðasta sumar þurfti hann að fara í hnéaðgerð og hinn 19 ára gamli Bernd Leno hrifsaði byrjunarliðssætið af Adler.

Leno kom frá Stuttgart til að fylla í skarðið meðan Adler væri að ná sér af meiðslum, en hann stóð sig svo vel að hann skrifaði undir fimm ára samning við lok tímabilsins.
,,Þegar maður getur fengið til sín 27 ára landsliðsmarkmann frítt þá getur maður ekki sagt nei,\" sagði Frank Arnesen, yfirmaður íþróttamála hjá Hamburg.
,,Hann er ákveðinn einstaklingur. Hann var frá í átta mánuði eftir hnéaðgerð og er samt í toppformi, það sýnir hversu ákveðinn Adler er.\"
Hamburg var að ljúka lélegu tímabili í efstu deild í Þýskalandi þar sem liðið endaði í 15. sæti, en Adler er annar leikmaðurinn sem skrifar undir hjá Hamburg á stuttum tíma.
Hinn maðurinn er Artjoms Rudnevs, 24. ára sóknarmaður frá Lettlandi sem er búinn að skora 22 mörk í 29 leikjum með Lech Poznan á tímabilinu.