Fotbolti.net
09.06.12 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Besiktas fær leikmann frá Arsenal (Staðfest)

Besiktas fær leikmann frá Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tyrkneska liðið Besiktas hefur fengið til sínn ungan leikmann frá enska úrvalsdeildarliðinu Arsenal, en um er að ræða Oguzhan Ozyakup.
Ozyakup, sem er 19 ára gamall gekk til liðs við Arsenal árið 2008. Hann spilaði tvo leiki með aðalliði félagsins, gegn Shrewsbury Town í deildabikarnum og þá í 8-2 tapi gegn Manchester United í deildinni.

Besiktas greiðir 405 þúsund pund fyrir þjónustu leikmannsins, en auk þess fær hann mjög svo veglega bónusa þegar hann skrifar undir og eru árslaunin hans sögð nema um 330 þúsund pund.

Ozyakup, sem er fæddur í Hollandi á samt sem áður ættir sínar að rekja til Tyrklands, eins og nafnið gefur til kynna, en hann er opinn fyrir því að leika með landsliði Tyrklands í framtíðinni.

Heimild: Soccerway

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.