Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. júní 2026 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kraftröðunin fyrir HM: Frændur vor og leifar af gullkynslóð
Sæti 12 til 9
Achraf Hakimi er líklega besti bakvörður í heimi í dag.
Achraf Hakimi er líklega besti bakvörður í heimi í dag.
Mynd: EPA
Mohamed Ouahbi er nýr landsliðsþjálfari Marokkó.
Mohamed Ouahbi er nýr landsliðsþjálfari Marokkó.
Mynd: EPA
Ayyoub Bouaddi, til vinstri, í leik með Lille. Hann er einn efnilegasti miðjumaður í heimi.
Ayyoub Bouaddi, til vinstri, í leik með Lille. Hann er einn efnilegasti miðjumaður í heimi.
Mynd: EPA
Noregur mætir eftir langa fjarveru á stórmótum.
Noregur mætir eftir langa fjarveru á stórmótum.
Mynd: EPA
Haaland er án efa stjarna Noregs.
Haaland er án efa stjarna Noregs.
Mynd: EPA
Martin Ödegaard stýrir ferðinni á miðjunni hjá Noregi.
Martin Ödegaard stýrir ferðinni á miðjunni hjá Noregi.
Mynd: EPA
Antonio Nusa er mjög spennandi leikmaður.
Antonio Nusa er mjög spennandi leikmaður.
Mynd: EPA
Luka Modric er mögulega að fara á sitt síðasta stórmót.
Luka Modric er mögulega að fara á sitt síðasta stórmót.
Mynd: EPA
Zlatko Dalic, landsliðsþjálfari Króatíu.
Zlatko Dalic, landsliðsþjálfari Króatíu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kovacic, Modric og Perisic eru allir þarna ennþá.
Kovacic, Modric og Perisic eru allir þarna ennþá.
Mynd: EPA
Luka Vuskovic er mjög efnilegur miðvörður.
Luka Vuskovic er mjög efnilegur miðvörður.
Mynd: EPA
Belgar fagna marki.
Belgar fagna marki.
Mynd: EPA
Kevin de Bruyne.
Kevin de Bruyne.
Mynd: EPA
Rudi Garcia, landsliðsþjálfari Belgíu.
Rudi Garcia, landsliðsþjálfari Belgíu.
Mynd: EPA
Verður Lukaku í nægilega góðu formi?
Verður Lukaku í nægilega góðu formi?
Mynd: EPA
Nú förum við senn að ljúka kraftröðun okkar fyrir HM sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. Spennan er heldur betur farin að magnast fyrir þessum viðburði sem verður mögulega sá stærsti í íþróttasögunni.

Það mæta 48 lið til leiks en við á Fótbolta.net kynnum liðin til leiks í sérstakri kraftröðun (e. power rankings) þar sem við röðum liðunum niður frá því slakasta til hins besta. Við tökum fjögur lið fyrir í hverri frétt fram að móti og kynnum við liðin aðeins til sögunnar. Við höldum svo áfram kraftröðuninni á meðan mótinu stendur.

Núna er komið að þeim liðum sem við erum með í sætum 12 til 9 í þessari kraftröðun. Þetta eru lið sem eru að stefna á að komast langt í mótinu og hafa burði til að gera það.

12. Marokkó
Eru í 7. sæti á heimslistanum.

Fyrir fjórum árum skrifaði Marokkó sig í sögubækurnar þegar þeir urðu fyrsta afríska liðið til að komast í undanúrslit heimsmeistaramóts og síðan þá hafa væntingarnar aðeins aukist. Atlasljónin eru núna eitt af þeim liðum sem allir fylgjast grannt með. Undanfarin misseri hafa þó verið viðburðarík. Marokkó tapaði upphaflega úrslitaleik Afríkukeppninnar á heimavelli gegn Senegal og Walid Regragui sagði í kjölfarið af sér sem landsliðsþjálfari. Nokkrum vikum síðar snerist málið hins vegar á hvolf þegar afríska fótboltasambandið úrskurðaði Senegal ósigur vegna atvika sem komu upp í úrslitaleiknum og Marokkó var formlega krýnt Afríkumeistari. Það breytti þó ekki því að nýr maður tók við keflinu. Sá heitir Mohamed Ouahbi og kemur inn með ferskar hugmyndir eftir að hafa stýrt U20 ára landsliði Marokkó til heimsmeistaratitils. Fyrstu merki undir hans stjórn hafa verið jákvæð og liðið virðist vilja spila framsæknari fótbolta en áður. Þar sem Regragui byggði árangurinn fyrst og fremst á skipulagi, aga og sterkri vörn virðist Ouahbi leggja meiri áherslu á sóknarleik og að halda bolta. Stóra spurningin er hvort sú breyting geri liðið enn hættulegra eða hvort það missi eitthvað af þeim styrk sem skilaði því í undanúrslit HM 2022. Hópurinn er áfram einn sá sterkasti utan Evrópu og Suður-Ameríku. Marokkó hefur leikmenn í lykilhlutverkum hjá stærstu félögum heims og reynslan frá Katar er enn fersk. Þeir munu ekki koma neinum á óvart í sumar, en það þýðir ekki að þeir geti ekki farið langt á ný.

Þjálfarinn: Mohamed Ouahbi tók við landsliðinu í kjölfar óvenjulegra atburða eftir Afríkukeppnina. Hann hafði áður vakið mikla athygli fyrir starf sitt með yngri landsliðum Marokkó og leiddi U20 ára landsliðið alla leið til heimsmeistaratitils. Ouahbi er talinn einn efnilegasti þjálfari Afríku og fær nú tækifæri til að sanna sig á stærsta sviðinu.

Lykilmaður: Achraf Hakimi (Paris Saint-Germain) er líklega besti bakvörður heims um þessar mundir og andlit þessa marokkóska liðs. Hann hefur verið lykilmaður hjá landsliðinu um árabil og var einn helsti arkitektinn að ævintýrinu í Katar. Hraði hans og endalausa orkan sem hann býr yfir gera hann að leikmanni sem getur breytt leikjum á eigin spýtur úr bakverðinum.

Gaman að fylgjast með: Ayyoub Bouaddi (Lille) er liðsfélagi Hákonar Arnars Haraldssonar. Hann er aðeins á táningsaldri en hefur vakið mikla athygli í frönsku úrvalsdeildinni og stærri félög eru farin að bera kvíurnar í hann. Miðjumaðurinn er talinn eitt stærsta efni sem Marokkó hefur eignast um langt skeið og margir sjá í honum framtíðarleiðtoga landsliðsins.

Leikir á HM: Brasilía í New York (13. júní); Skotland í Boston (19. júní); Haítí í Atlanta (24. júní).

11. Noregur
Eru í 31. sæti á heimslistanum.

Það eru liðin 28 ár síðan frændur okkur frá Noregi léku síðast á heimsmeistaramóti, en nú eru Norðmenn loksins mættir aftur, og þeir eru svo sannarlega ekki að mæta bara til að taka þátt. Fá lið koma inn í mótið með jafn mikið sjálfstraust og Norðmenn, sem fóru gjörsamlega á kostum í undankeppninni. Noregur vann alla átta leiki sína, skoraði 37 mörk og lagði meðal annars Ítali tvívegis að velli á leið sinni til Norður-Ameríku. Þetta er ein sterkasta kynslóð sem Norðmenn hafa átt, ef ekki bara sú sterkasta. Erling Haaland er einn besti framherji heims, Martin Ödegaard stjórnar miðjunni og í kringum þá hefur myndast hópur sem er bæði reynslumeiri og dýpri en áður. Það sást meðal annars í síðustu landsleikjum fyrir mótið þegar Norðmenn stóðu sig vel gegn Hollandi og Sviss þrátt fyrir að nokkrar af stærstu stjörnum liðsins væru fjarverandi. Þá rúlluðu þeir einnig upp Svíum í vináttuleik og sendu skýr skilaboð um að þeir ætli sér ekki að vera aukaleikarar á HM. Það er því engin tilviljun að margir hafa stimplað Noreg sem eitt helsta „dark horse“ lið mótsins. Sagan kennir okkur þó að slíkur stimpill getur verið hættulegur. Norðmenn hafa ekki verið á stórmóti síðan á EM 2000 og reynsla liðsins af stærsta sviðinu er takmörkuð. Á hinn bóginn eru gæðin augljós og ef þeir ná að halda jafnvægi milli áræðni og aga gætu þeir farið skugglega langt á mótinu.

Þjálfarinn: Stale Solbakken tók við norska landsliðinu árið 2020 með það markmið að enda langa bið þjóðarinnar eftir stórmóti. Eftir nokkur vonbrigði í byrjun hefur hann smám saman byggt upp lið með skýra sjálfsmynd og mikla trú á eigin getu. Solbakken hefur reynst þolinmóður í uppbyggingunni og uppsker nú loksins árangurinn með fyrsta HM-sæti Noregs síðan árið 1998. Hann stýrði FC Kaupmannahöfn í mörg ár áður en hann tók við Noregi.

Lykilmaður: Erling Haaland (Manchester City) er auðvitað stærsta stjarna liðsins ásamt Martin Ödegaard. Framherjinn skoraði 16 mörk í undankeppninni og var einfaldlega óstöðvandi. Þegar Haaland er í stuði getur hann breytt leik á örfáum sekúndum og það eru fáir varnarmenn á HM sem hlakka til að eiga við hann. Ef Noregur ætlar sér langt verður markamaskínan að halda áfram að framleiða.

Gaman að fylgjast með: Antonio Nusa (RB Leipzig) hefur verið á hraðri leið upp á við síðustu árin og er einn mest spennandi kantmaður Evrópu. Hann býr yfir sprengikrafti og frábærri tækni sem getur opnað nánast hvaða vörn sem er. Hrikalega spennandi leikmaður sem er annað krydd í spennandi sóknarleik Noregs.

Leikir á HM: Írak í Boston (16. júní); Senegal í New York (22. júní); Frakkland í Boston (26. júní).

10. Króatía
Eru í 11. sæti á heimslistanum.

Það er eitthvað við Króatíu á stórmótum. Á meðan aðrar þjóðir fara inn í heimsmeistaramót með háværar yfirlýsingar og miklar væntingar mætir Króatía yfirleitt í rólegheitum til leiks, og endar svo einhvern veginn alltaf á því að vera enn á lífi þegar komið er í átta liða úrslitin. Silfrið árið 2018 og bronsið árið 2022 staðfesta að þetta er ekki tilviljun. Margir hafa bent á hækkandi aldur lykilmanna liðsins og vissulega eru nokkrir af burðarásunum komnir vel yfir þrítugt. Það hefur þó verið sagt um Króata fyrir hvert stórmót undanfarinn áratug og samt halda þeir áfram að skila árangri. Kannski er það vegna þess að þeir virðast alltaf finna réttu blönduna af reynslu, karakter og hæfileikum. Undir stjórn Zlatko Dalic hefur liðið enn á ný sýnt að það getur lagað sig að aðstæðum. Í aðdraganda mótsins prófaði Króatía nýjar leiðir, meðal annars þriggja miðvarða kerfi sem gekk vel gegn Kólumbíu. Ungi varnarmaðurinn Luka Vuskovi? virðist hafa fest sig í sessi sem nýr lykilmaður aftast á vellinum og gæti orðið næsti stóri varnarmaður sem Króatar framleiða. Um leið eru menn á borð við Josko Gvardiol, Mateo Kovacic og auðvitað Luka Modric enn í lykilhlutverkum. Þetta er enn sama gamla uppskriftin hjá Króatíu og hingað til hefur sú blanda nánast aldrei brugðist.

Þjálfarinn: Zlatko Dalic hefur stýrt einu farsælasta tímabili í sögu króatíska landsliðsins. Fáir þjálfarar geta státað af því að hafa farið með þjóð sína í HM-úrslit og síðan í undanúrslit á næsta móti. Dalic hefur skapað lið sem er taktískt sveigjanlegt, agað og ótrúlega erfitt að afskrifa.

Lykilmaður: Luka Modric (AC Milan) er enn þarna, það er ekkert að afskrifa þennan snilling. Þetta verður að öllum líkindum síðasta heimsmeistaramót eins besta miðjumanns sinnar kynslóðar og einn af síðustu köflunum á ótrúlegum ferli hans. Þó fæturnir séu ekki jafn léttir og áður, þá heldur hann áfram að stjórna hraða leikja, finna lausnir undir pressu og leiða liðið innan sem utan vallar.

Gaman að fylgjast með: Luka Vuskovic (Tottenham) er aðeins rétt að byrja ferilinn en hefur þegar vakið gríðarlega athygli. Miðvörðurinn hefur komið sér inn í byrjunarlið landsliðsins af miklum krafti og margir í Króatíu telja hann geta orðið næsta stóra varnarjaxl þjóðarinnar. HM gæti orðið vettvangurinn þar sem hann kynnir sig endanlega fyrir fótboltaheiminum en hann spilar í ensku úrvalsdeildinni með Tottenham á næsta tímabili.

Leikir á HM: England í Dallas (17. júní); Panama í Toronto (23. júní); Gana í Philadelphia (27. júní).

9. Belgía
Eru í 9. sæti á heimslistanum.

Gullkynslóðin hjá Belgum er farin að molna niður. Kynslóðin sem átti að vinna eitthvað stórt fyrir þjóðina skilaði sér aldrei alla leið, þrátt fyrir að hafa haft leikmenn á borð við Eden Hazard, Vincent Kompany, Thibaut Courtois, Kevin De Bruyne og Romelu Lukaku á hátindi ferils síns. Nú er nýr kafli hafinn, en leifarnar af þeirri kynslóð eru enn til staðar og eiga að leiða næstu kynslóð áfram. Rudi Garcia hefur tekið við verkefninu að finna rétta jafnvægið milli reynslu og yngri leikmanna. Í aðdraganda mótsins sýndi Belgía sitt besta og versta andlit. Liðið skoraði fimm mörk gegn Bandaríkjunum og sýndi þar hversu mikil sóknargleðin getur verið, en var um leið aftur í vandræðum með föst leikatriði og varnarleik sem hefur verið ákveðið áhyggjuefni um nokkurt skeið. Þrátt fyrir að vera ekki jafn ógnvekjandi og fyrir áratug síðan er enn gríðarlegur hæfileiki í belgíska hópnum. Jeremy Doku hefur þróast í eina mest spennandi kantmann Evrópu, Charles De Ketelaere hefur tekið skref fram á við og Kevin De Bruyne er enn maðurinn sem allt snýst um þegar Belgía þarf að finna lausnir. Þeir lentu einnig í hagstæðum riðli og ættu að komast áfram án teljandi vandræða. Spurningin er hins vegar hvað tekur við eftir það. Belgar virðast vera of sterkir til að klúðra málunum en ekki alveg nógu sannfærandi til að teljast meðal helstu titilkandídata. Kannski hentar það þeim bara ágætlega.

Þjálfarinn: Rudi Garcia er reynslumikill Frakki sem hefur þjálfað víða í Evrópu, meðal annars hjá Lille, Roma, Marseille, Lyon og Napoli. Hann tók við belgíska landsliðinu á tímum ákveðinna kynslóðaskipta og hefur reynt að byggja nýtt lið án þess að missa tenginguna við stóru nöfnin sem enn eru eftir. Verkefnið er ekki einfalt, en Garcia hefur yfir að ráða hópi sem getur valdið flestum liðum vandræðum.

Lykilmaður: Kevin de Bruyne (Napoli) er enn heilinn í belgíska liðinu. Þetta verður að öllum líkindum síðasta heimsmeistaramót eins besta miðjumanns sinnar kynslóðar og Belgar treysta enn á að hann finni sendingar sem aðrir sjá ekki.

Gaman að fylgjast með: Romelu Lukaku (Napoli) er ein stærsta spurning mótsins. Framherjinn spilaði aðeins um klukkutíma af félagsliðsfótbolta á tímabilinu sem var að líða vegna meiðsla og þar sem hann var settur í frystikistuna hjá Antonio Conte en var samt valinn í HM-hópinn. Ástæðan er einföld: Hann virðist alltaf skora fyrir Belgíu. Lukaku er markahæsti landsliðsmaður í sögu þjóðarinnar og hefur oftar en ekki verið mun betri í rauðu treyjunni en með félagsliðum sínum. En í hvernig formi verður hann?

Leikir á HM: Egyptaland í Seattle (15. júní); Íran í Los Angeles (21. júní); Nýja-Sjáland í Vancouver (26. júní).

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner
banner