Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 08. júní 2026 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kraftröðunin fyrir HM: Fátt um hlátur eða háðsglósur
Sæti 16 til 13
Moises Caicedo er einn besti miðjumaður mótsins.
Moises Caicedo er einn besti miðjumaður mótsins.
Mynd: EPA
Aðeins Argentína var fyrir ofan Ekvador í undankeppninni.
Aðeins Argentína var fyrir ofan Ekvador í undankeppninni.
Mynd: EPA
Enner Valencia er fyrirliði Ekvador.
Enner Valencia er fyrirliði Ekvador.
Mynd: EPA
Kendry Paez er hrikalega efnilegur.
Kendry Paez er hrikalega efnilegur.
Mynd: Chelsea
Úr vináttulandsleik Mexíkó og Íslands í febrúar.
Úr vináttulandsleik Mexíkó og Íslands í febrúar.
Mynd: EPA
Javier Aguirre er að fara á sitt þriðja heimsmeistaramót.
Javier Aguirre er að fara á sitt þriðja heimsmeistaramót.
Mynd: EPA
Raul Jimenez er stjarnan í liði Mexíkó.
Raul Jimenez er stjarnan í liði Mexíkó.
Mynd: EPA
Gilberto Mora er mjög spennandi.
Gilberto Mora er mjög spennandi.
Mynd: EPA
Úr vináttulandsleik Íslands og Japans á dögunum.
Úr vináttulandsleik Íslands og Japans á dögunum.
Mynd: EPA
Hajime Moriyasu, landsliðsþjálfari Japans.
Hajime Moriyasu, landsliðsþjálfari Japans.
Mynd: EPA
Wataru Endo, fyrirliði Japana.
Wataru Endo, fyrirliði Japana.
Mynd: EPA
Senegal varð Afríkumeistari fyrr á þessu ári en svo var titillinn tekinn af þeim.
Senegal varð Afríkumeistari fyrr á þessu ári en svo var titillinn tekinn af þeim.
Mynd: EPA
Stuðningsmenn Senegal eru hressir.
Stuðningsmenn Senegal eru hressir.
Mynd: EPA
Ibrahim Mbaye er mög spennandi leikmaður.
Ibrahim Mbaye er mög spennandi leikmaður.
Mynd: EPA
Við höldum áfram að hita upp fyrir HM sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. Spennan er heldur betur farin að magnast fyrir þessum viðburði sem verður mögulega sá stærsti í íþróttasögunni.

Það mæta 48 lið til leiks en við á Fótbolta.net kynnum liðin til leiks í sérstakri kraftröðun (e. power rankings) þar sem við röðum liðunum niður frá því slakasta til hins besta. Við tökum fjögur lið fyrir í hverri frétt fram að móti og kynnum við liðin aðeins til sögunnar. Við höldum svo áfram kraftröðuninni á meðan mótinu stendur.

Núna er komið að þeim liðum sem við erum með í sætum 16 til 13 í þessari kraftröðun. Þetta eru lið sem eru að stefna á að komast langt í mótinu.

16. Ekvador
Eru í 23. sæti á heimslistanum.

Ekvador er fyrirfram eitt af þeim liðum sem er að fara mest undir radarinn. Á meðan athyglin beinist gjarnan að Argentínu, Brasilíu og Úrúgvæ hafa Ekvadorar í rólegheitunum byggt upp eitt sterkasta landslið sitt frá upphafi. Þeir enduðu í öðru sæti í suður-amerísku undankeppninni, aðeins á eftir Argentínu, og það þrátt fyrir að hafa byrjað keppnina með þriggja stiga refsingu. Það sem vekur kannski mesta athygli er hversu erfitt hefur reynst að vinna þá. Ekvador hefur nú ekki tapað í 19 landsleikjum í röð og fór taplaust í gegnum síðustu æfingaleiki sína fyrir mótið. Jafntefli gegn Marokkó og Hollandi sýndu vel styrkleika liðsins; skipulag, agaðan varnarleik og mikla vinnusemi. Á móti hefur skort örlítið meiri skerpu fyrir framan markið til að breyta góðum frammistöðum í sigra. Lið Sebastián Beccacece spilar af miklum krafti. Pressan er há, bakverðirnir sækja óhræddir fram og allir vita nákvæmlega hvert hlutverk þeirra er. Þetta er kannski ekki lið sem vinnur leiki 4-3, en það er lið sem getur gert hvaða andstæðingi sem er lífið leitt. Ekvador fékk aðeins á sig fimm mörk í átján leikjum í undankeppninni og slíkur varnarleikur getur komið liðum langt á heimsmeistaramóti. Kannski vantar síðasta bitann til að teljast meðal allra sterkustu þjóðanna, en með sterka kynslóð leikmanna og bullandi sjálfstraust á leiðinni til Norður-Ameríku gæti Ekvador vel orðið eitt af þeim liðum sem fer hljóðlega langt.

Þjálfarinn: Sebastián Beccacece er Argentínumaður sem vakti fyrst athygli sem hægri hönd Marcelo Bielsa og síðar Jorge Sampaoli áður en hann hóf eigin aðalþjálfaraferil. Hann krefst mikillar ákefðar frá sínum leikmönnum og leikstíll Ekvador endurspeglar það vel. Áður en hann tók við Ekvador árið 2024 stýrði hann Elche á Spáni.

Lykilmaður: Moises Caicedo (Chelsea) er vélin sem knýr Ekvador áfram. Miðjumaðurinn hefur fest sig í sessi meðal bestu leikmanna heims í sinni stöðu. Hann getur unnið boltann, stjórnað tempóinu og hrint af stað sóknum. Ef Ekvador ætlar sér að komast langt verður Caicedo í lykilhlutverki.

Gaman að fylgjast með: Kendry Paez (Chelsea) hefur verið á radar stærstu félaga heims síðan hann var barn. Sóknarsinnaði miðjumaðurinn, sem var keyptur ungur til Chelsea, er talinn eitt mesta efni sem komið hefur frá Suður-Ameríku og margir telja að hann geti orðið næsta stóra stjarna álfunnar. Þrátt fyrir ungan aldur virðist hann aldrei hræddur við að taka ábyrgð eða reyna hluti sem aðrir þora ekki.

Leikir á HM: Fílabeinsströndin í Philadelphia (14. júní); Curacao í Kansas City (20. júní); Þýskaland í New York (25. júní).

15. Mexíkó
Eru í 15. sæti á heimslistanum.

Mexíkó fer inn í mótið með væntingar þjóðarinnar á herðunum. Fáar þjóðir lifa og hrærast jafn mikið í fótbolta og Mexíkó og pressan verður gríðarleg þegar El Tri hefur leik fyrir framan tugþúsundir stuðningsmanna á hinum sögufræga Azteca leikvangi. Af gestgjöfunum þremur eru Mexíkóar líklega þeir sem eiga mesta möguleika á að gera alvöru atlögu að góðu gengi í sumar. Undir stjórn Javier Aguirre virðist liðið vera að finna betra jafnvægi en oft áður. Í mars gerðu Mexíkó jafntefli við bæði Portúgal og Belgíu og stóðu sig vel í báðum leikjum. Liðið hélt boltanum vel, skapaði sér færi og hélt sterkum andstæðingum að mestu niðri þrátt fyrir að glíma við töluverð meiðslavandræði. Það eru jákvæð teikn fyrir þjóð sem veit að allt annað en sæmilegt HM á heimavelli verður talið vonbrigði. Saga Mexíkó á heimsmeistaramótum er sérstök. Áratugum saman virtust þeir vera fastir í bölvun sextán liða úrslitanna, en þegar þeirri bölvun lauk á HM 2022 gerðist það á versta mögulega hátt þar sem Mexíkó féll úr leik strax í riðlakeppninni. Að gera það aftur á heimavelli væri í raun þjóðarsorg. Sem betur fer virðist drátturinn hafa verið þeim hagstæður og bjartsýni ríkir meðal stuðningsmanna. Heimavöllurinn gæti reynst stærsta vopnið. Mexíkó mun spila alla riðlakeppni sína fyrir framan eigin áhorfendur og ef stemningin nær að bera liðið áfram gæti Mexíkó orðið eitt af þeim liðum sem erfitt verður að eiga við í sumar.

Þjálfarinn: Javier Aguirre er einn reyndasti landsliðsþjálfari heims og stýrir Mexíkó á HM í þriðja sinn. Hann kom einnig liðinu á HM 2002 og 2010 og þekkir betur en flestir hvað þarf til að takast á við þá gríðarlegu pressu sem fylgir mexíkóska landsliðinu. Aguirre hefur komið meiri yfirvegun og skipulag í leik liðsins og vonast Mexíkóar til að reynslan skili sér þegar á reynir.

Lykilmaður: Raul Jimenez (Fulham) hefur farið í gegnum meira en flestir leikmenn á sínum ferli. Höfuðkúpubrotið sem hann varð fyrir árið 2020 hefði getað bundið endi á feril hans, en framherjinn barðist til baka og er enn einn mikilvægasti leikmaður Mexíkó. Þegar hann er í stuði gefur hann liðinu vídd sem fáir aðrir geta boðið upp á, bæði sem markaskorari og tengiliður í sóknarleiknum.

Gaman að fylgjast með: Gilberto Mora (Tijuana) verður aðeins 17 ára gamall þegar mótið hefst. Það hefur verið talað um þennan sóknarsinnaða miðjumann sem framtíðarstjörnu og margir sjá í honum leikmann sem gæti orðið andlit mexíkóska landsliðsins næsta áratuginn. Fáir unglingar fá tækifæri til að stíga fram á heimsmeistaramóti, en ef Mora fær mínútur gæti hann orðið einn af stóru sögum sumarsins.

Leikir á HM: Suður-Afríka í Mexico City (11. júní); Suður-Kórea í Guadalajara (18. júní); Tékkland í Mexico City (24. júní).

14. Japan
Eru í 18. sæti á heimslistanum.

Japanir mæta til leiks á HM með meira sjálfstraust en nokkru sinni fyrr. Þeir voru fyrsta þjóðin til að tryggja sér sæti á mótinu í gegnum undankeppni og hafa síðan sent skýr skilaboð til keppinautanna um að þeir ætli sér meira en bara að vera erfiður andstæðingur. Í mars unnu þeir bæði Skotland og England, þar á meðal sögulegan 1-0 sigur á Wembley þar sem Japan varð fyrsta asíska þjóðin til að leggja Englendinga að velli á heimavelli þeirra. Það sem gerir þau úrslit enn athyglisverðari er að Japan var ekki einu sinni með sitt sterkasta lið. Nokkrar af stærstu stjörnum liðsins voru fjarverandi, en engu að síður leit liðið út fyrir að vera skipulagt, yfirvegað og fullkomlega meðvitað um eigin styrkleika. Hajime Moriyasu hefur smíðað landslið sem er orðið jafn sterkt sem heild og það er hæfileikaríkt á einstaklingsgrunni. Japanir hafa nú komist á átta heimsmeistaramót í röð en hafa aldrei farið lengra en í 16-liða úrslit. Margir telja að þessi kynslóð sé sú besta sem landið hefur sent á HM og að nú sé kominn tími til að brjóta næsta múr. Varnarleikurinn var frábær í undankeppninni þar sem liðið fékk aðeins á sig þrjú mörk í tíu leikjum og gæðin fram á við eru meiri en áður. Það eru þó ekki allar spurningar svaraðar. Í aðdraganda mótsins vann Japan okkur Íslendinga aðeins 1-0 í leik þar sem liðið átti lengi í vandræðum með að finna leið í gegnum þétta íslenska vörn. Það gæti orðið ákveðið áhyggjuefni gegn liðum sem leggja alla áherslu á að verjast. Á móti kemur að Japan hefur sýnt að þegar rými myndast geta þeir refsað nánast hverjum sem er. Þetta er lið sem getur farið langt og enginn af stóru þjóðunum mun fagna því að mæta því í útsláttarkeppninni.

Þjálfarinn: Hajime Moriyasu hefur verið við stjórnvölinn frá 2018 og er orðinn einn farsælasti landsliðsþjálfari í sögu Japans. Undir hans stjórn hefur liðið unnið marga eftirminnilega sigra, þar á meðal gegn Þýskalandi og Spáni á HM 2022, og nú nýverið gegn Englandi á Wembley. Moriyasu hefur tekist að blanda saman aga, skipulagi og tæknilegum gæðum á þann hátt að Japan er eitt sterkasta landslið Asíu og sífellt meiri ógn á heimsvísu.

Lykilmaður: Wataru Endo (Liverpool) er hjartað og lungun í japanska landsliðinu. Fyrirliðinn er kannski ekki sá leikmaður sem fær flestar fyrirsagnirnar, en mikilvægi hans fyrir liðið er gríðarlegt. Endo sér um að halda jafnvægi á miðjunni, vinnur gríðarlega mikið varnarlega og leiðir liðið með fordæmi innan vallar. Reynslan sem hann hefur safnað sér í Evrópu gæti reynst ómetanleg þegar á reynir í útsláttarleikjum.

Gaman að fylgjast með: Keisuke Goto (Sint-Truiden) er mjög efnilegur framherji. Hann hefur vakið athygli fyrir markanef sitt, hreyfanleika og sjálfstraust þrátt fyrir ungan aldur. HM gæti komið aðeins of snemma til að hann verði lykilmaður, en ef Japan kemst langt gæti Goto orðið eitt af þeim ungu nöfnum sem fleiri þekkja þegar mótinu lýkur. Hann er hávaxinn og skoraði ellefu mörk í 25 leikjum í Belgíu á tímabilinu.

Leikir á HM: Holland í Dallas (14. júní); Túnis í Monterrey (20. júní); Svíþjóð í Dallas (25. júní).

13. Senegal
Eru í 14. sæti á heimslistanum.

Senegal fer inn á HM með meiri væntingar en nokkru sinni fyrr. Þegar þjálfarinn Pape Thiaw sagði nýlega að hann teldi sitt lið geta unnið heimsmeistaratitilinn var fátt um hlátur eða háðsglósur. Fyrir ekki svo löngu hefði slík yfirlýsing frá afrísku landsliði þótt óraunhæf, en staða Senegal í dag er önnur. Þetta er lið sem hefur bæði gæði, reynslu og sjálfstraust til að láta sig dreyma stórt. Senegal hefur um árabil verið eitt stöðugasta landslið Afríku og uppsker nú afrakstur öflugs leikmannauppeldis. Akademíur á borð við Generation Foot og Diambars hafa framleitt leikmenn sem eru orðnir fastagestir í sterkustu deildum Evrópu. Kjarninn í liðinu er reynslumikill, en á sama tíma eru yngri leikmenn stöðugt að banka á dyrnar. Liðið hefur áður sýnt að það getur staðið jafnfætis bestu þjóðum heims. Senegal komst í átta liða úrslit HM 2002 í fyrstu tilraun sinni og fór aftur í útsláttarkeppnina árið 2022. Nú er markmiðið að taka næsta skref. Það verður þó ekki auðvelt. Drátturinn var erfiður og bæði Frakkland og Noregur bíða í riðlinum. Stærsta verkefnið fyrir Pape Thiaw verður líklega að halda sínum bestu mönnum heilum. Minningarnar frá HM 2022 eru sárar þar sem Sadio Mané missti af mótinu vegna meiðsla á síðustu stundu. Ef stjörnurnar haldast heilar gæti Senegal hins vegar orðið það afríska lið sem kemst lengst í sumar. Senegal varð Afríkumeistari fyrr á þessu ári en tveimur mánuðum síðar tók afríska fótboltasambandið titilinn af þeim. Senegal hafði gengið af velli í mótmælaskyni eftir umdeilda dómgæslu og sambandið í Afríku úrskurðaði að Senegal hefði þá gefið leikinn gegn Marokkó. Málið er nú til meðferðar hjá Alþjóðaíþróttadómstólnum, en á meðan heldur Senegal því fram að það sé hið raunverulega meistaralið Afríku.

Þjálfarinn: Pape Thiaw tók við af Aliou Cissé og hefur haldið áfram á þeirri vegferð sem gert hefur Senegal að stórveldi í afrískum fótbolta. Fyrrum landsliðsframherjinn þekkir menninguna og væntingarnar betur en flestir og hefur lagt áherslu á að viðhalda þeirri samheldni sem hefur verið eitt helsta vörumerki liðsins undanfarin ár. Hann felur ekki metnað sinn og hefur opinskátt talað um að Senegal eigi að stefna alla leið á mótinu í sumar.

Lykilmaður: Sadio Mane (Al-Nassr) er áfram sá leikmaður sem andstæðingarnir óttast mest í liði Senegal þrátt fyrir að vera ekki sá yngsti lengur. Hraðinn er kannski ekki alveg sá sami og áður, en reynslan, leiðtogahæfileikarnir og hæfileikinn til að stíga upp í stærstu leikjunum gera hann enn að lykilmanni. Fáir leikmenn hafa haft jafn mikil áhrif á landslið sitt á þessari öld.

Gaman að fylgjast með: Ibrahim Mbaye (PSG) er athyglisverðasta nafnið í nýrri kynslóð senegalskra leikmanna. Framherjinn hefur vakið athygli fyrir sprengikraft og tækni. Assane Diao, kantmaður Como, hefur einnig komið inn í myndina af krafti og gæti vel orðið einn af uppgötvunum mótsins, en Mbaye er sá sem margir innan Senegal telja að geti orðið næsta stóra stjarna landsins.

Leikir á HM: Frakkland í New York (16. júní); Noregur í New York (22. júní); Írak í Toronto (26. júní).

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner
banner