PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kraftröðunin fyrir HM: Fyrirmynd Klopp og mögulegur arftaki Salah
Sæti 20 til 17
Ralf Rangnick, landsliðsþjálfari Austurríkis.
Ralf Rangnick, landsliðsþjálfari Austurríkis.
Mynd: EPA
David Alaba.
David Alaba.
Mynd: EPA
Carney Chukwuemeka fer með Austurríki á HM.
Carney Chukwuemeka fer með Austurríki á HM.
Mynd: EPA
Marko Arnautovic og Marcel Sabitzer.
Marko Arnautovic og Marcel Sabitzer.
Mynd: EPA
Fílabeinsströndin varð Afríkumeistari 2024.
Fílabeinsströndin varð Afríkumeistari 2024.
Mynd: EPA
Yan Diomande hefur verið sterklega orðaður við Liverpool.
Yan Diomande hefur verið sterklega orðaður við Liverpool.
Mynd: EPA
Amad Diallo og Simon Adingra, spennandi kantmenn.
Amad Diallo og Simon Adingra, spennandi kantmenn.
Mynd: EPA
Franck Kessie er sterkur á miðjunni.
Franck Kessie er sterkur á miðjunni.
Mynd: EPA
Luis Diaz er lykilmaður Kólumbíu.
Luis Diaz er lykilmaður Kólumbíu.
Mynd: EPA
Getur Jamez Rodriguez fundið töfrana aftur frá 2014?
Getur Jamez Rodriguez fundið töfrana aftur frá 2014?
Mynd: EPA
Úr leik Kólumbíu og Argentínu.
Úr leik Kólumbíu og Argentínu.
Mynd: EPA
Arda Guler er stjarna Tyrklands.
Arda Guler er stjarna Tyrklands.
Mynd: EPA
Vincenzo Montella.
Vincenzo Montella.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kenan Yildiz er mjög skemmtilegur leikmaður.
Kenan Yildiz er mjög skemmtilegur leikmaður.
Mynd: EPA
Hvað gera Tyrkir í sumar?
Hvað gera Tyrkir í sumar?
Mynd: EPA
Við höldum áfram að hita upp fyrir HM sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. Spennan er heldur betur farin að magnast fyrir þessum viðburði sem verður mögulega sá stærsti í íþróttasögunni.

Það mæta 48 lið til leiks en við á Fótbolta.net kynnum liðin til leiks í sérstakri kraftröðun (e. power rankings) þar sem við röðum liðunum niður frá því slakasta til hins besta. Við tökum fjögur lið fyrir í hverri frétt fram að móti og kynnum við liðin aðeins til sögunnar. Við höldum svo áfram kraftröðuninni á meðan mótinu stendur.

Núna er komið að þeim liðum sem við erum með í sætum 20 til 17 í þessari kraftröðun, við erum komin í efri hlutann og það styttist alltaf í toppliðin á mótinu. Þessi lið hérna gætu þó gert alls konar usla á mótinu.

20. Austurríki
Eru í 24. sæti á heimslistanum.

Austurríki er eitt af þeim liðum sem ekki margir eru að tala um fyrir mótið, en gæti vel komið mörgum á óvart. Austurríkismenn tryggðu sér sæti á HM í fyrsta sinn síðan 1998 án þess að þurfa að fara í gegnum umspil og hafa verið á stöðugri uppleið síðan Ralf Rangnick tók við landsliðinu. Á EM 2024 vakti liðið verðskuldaða athygli þegar það vann riðil með bæði Frakklandi og Hollandi innanborðs. Þó að Tyrkir hafi stöðvað þá í 16-liða úrslitum sýndi Austurríki að það getur vel keppt við bestu lið Evrópu. Rangnick hefur mótað lið sem spilar af miklum krafti, pressar hátt og sækir hratt fram völlinn þegar færi gefst. Undirbúningurinn fyrir HM hefur einnig verið lofandi. Austurríkismenn unnu bæði Gana 5-1 og Suður-Kóreu 1-0 í mars og nýir leikmenn eins og Paul Wanner og Carney Chukwuemeka hafa strax gefið liðinu aukna dýpt. Kjarninn er sterkur, leikstíllinn skýr og sjálfstraustið mikið. Riðillinn verður krefjandi, en ef Austurríki kemst upp úr honum er þetta lið sem enginn verður sérstaklega spenntur fyrir að mæta í útsláttarkeppninni.

Þjálfarinn: Ralf Rangnick er einn áhrifamesti hugsuður nútímafótboltans. Þýski þjálfarinn lagði grunninn að þeim hápressufótbolta sem síðar varð einkennismerki liða á borð við Liverpool og RB Leipzig. Hann var fyrirmynd Jurgen Klopp til dæmis. Ferill hans hefur ekki alltaf verið bein leið, sérstaklega ekki stuttur tími hans hjá Manchester United, en með austurríska landsliðinu hefur hann fundið sinn stað. Undir hans stjórn hefur Austurríki þróast úr áhugaverðu liði í raunverulegan keppinaut við sterkustu þjóðir Evrópu.

Lykilmaður: David Alaba (Real Madrid) hefur verið andlit austurríska landsliðsins í meira en áratug. Fyrirliðinn hefur unnið allt sem hægt er að vinna með félagsliðum sínum og er enn leiðtogi bæði innan vallar og utan hjá landsliðinu. Alaba getur spilað nánast hvar sem er á vellinum en reynsla hans, yfirvegun og leiðtogahæfileikar eru það sem skiptir Austurríki mestu máli. Þetta er fyrsta heimsmeistaramót hans og það er vonandi fyrir Austurríki að hann haldist heill heilsu.

Gaman að fylgjast með: Carney Chukwuemeka (Borussia Dortmund) er nýja nafnið í austurríska hópnum. Miðjumaðurinn, sem var á mála hjá Chelsea fékk nýverið leyfi til að spila fyrir Austurríki og vakti strax athygli í fyrstu landsleikjum sínum eftir að hafa alist upp á Englandi. Chukwuemeka er kraftmikill og tæknilega sterkur leikmaður. Ef hann nær að festa sig í sessi gæti hann orðið einn af áhugaverðustu leikmönnum mótsins.

Leikir á HM: Jórdanía í San Francisco (16. júní); Argentína í Dallas (22. júní); Alsír í Kansas City (27. júní).

19. Fílabeinsströndin
Eru í 34. sæti á heimslistanum.

Fílabeinsströndin hefur oft farið á stórmót með miklar væntingar á herðum sér, en aldrei tekist að komast upp úr riðlakeppni heimsmeistaramóts. Það er merkileg staðreynd þegar litið er til þess að þjóðin hefur alið af sér leikmenn á borð við Didier Drogba og Yaya Touré. Nú telja margir þó að þetta lið geti loksins brotið þann múr. Fílabeinsstrendingar mæta til leiks með sjálfstraust eftir að hafa unnið Afríkukeppnina á heimavelli árið 2024 og farið taplausir í gegnum HM-undankeppnina. Undir stjórn Emerse Faé hefur liðið þróað með sér skýra leikmynd þar sem sterkur varnarleikur og hraði á köntunum eru helstu vopnin. Í vor unnu þeir meðal annars Suður-Kóreu sannfærandi 4-0 og lögðu Skotland einnig að velli. Styrkleikarnir liggja fyrst og fremst á vængjunum. Þar eru leikmenn eins og Amad Diallo, Simon Adingra, Nicolas Pépé og Yan Diomandé sem geta skapað usla með hraða sínum og einstaklingsgæðum. Spurningamerkið er fremur hver muni skora mörkin í fremstu víglínu, þó Elye Wahi hafi verið kallaður inn til að leysa það hlutverk. Það eru kannski Marokkó og Senegal sem fá stærstu fyrirsagnirnar þegar rætt er um afrísku þjóðirnar á HM, en Fílabeinsströndin gæti vel orðið liðið sem læðist lengst án þess að margir búist við því.

Þjálfarinn: Emerse Faé varð þjóðhetja þegar hann stýrði Fílabeinsströndinni til sigurs á Afríkukeppninni eftir að hafa tekið við liðinu í miðju móti við afar erfiðar aðstæður. Fyrrum landsliðsmaðurinn hafði litla reynslu sem aðalþjálfari þegar hann tók við, en náði að blása lífi í lið sem virtist á leiðinni út úr mótinu. Nú fær hann stærsta verkefni ferilsins hingað til á heimsmeistaramótinu.

Lykilmaður: Franck Kessie (Al-Ahli) er hjartað á miðju Fílabeinsstrandarinnar. Hann býr yfir sjaldgæfri blöndu af styrk, úthaldi og leikskilningi og hefur í mörg ár verið einn mikilvægasti leikmaður landsliðsins. Kessié skilar jafnt varnarvinnu sem sóknarframlagi og er sá leikmaður sem heldur jafnvæginu í liði sem býr yfir miklum sóknargæðum.

Gaman að fylgjast með: Yan Diomande (RB Leipzig) er eitt heitasta nafnið í fótboltaheiminum öllum um þessar mundir. Kantmaðurinn ungi hefur vakið athygli fyrir sprengikraft og hæfileikann til að fara fram hjá varnarmönnum einn gegn einum. Orðrómur hefur þegar bendlað hann við stærstu félög Evrópu, þar á meðal Liverpool, þar sem sumir sjá hann sem mögulegan arftaka Mohamed Salah. HM gæti orðið sviðið þar sem hann kynnir sig fyrir alvöru fyrir fótboltaheiminum.

Leikir á HM: Ekvador í Philadelphia (14. júní); Þýskaland í Toronto (20. júní); Curacao í Philadelphia (25. júní).

18. Kólumbía
Eru í 13. sæti á heimslistanum.

Kólumbía fer inn á HM með stórar væntingar og ekki að ástæðulausu. Fyrir tveimur árum fór liðið alla leið í úrslit Suður-Ameríkukeppninnar og um tíma leit Kólumbía út fyrir að vera eitt allra sterkasta landslið heims. Þá kom hins vegar erfiður kafli þar sem Kólumbía vann ekki leik í sex tilraunum og efasemdir fóru að læðast að. Undankeppnin endaði þó vel og Kólumbíumenn tryggðu sér þriðja sætið í Suður-Ameríku. Undirbúningurinn fyrir HM hefur verið krefjandi. Néstor Lorenzo valdi að mæta sterkum andstæðingum í mars og niðurstaðan varð tap gegn bæði Króatíu og Frakklandi. Þó úrslitin hafi ekki verið hagstæð telja margir að slíkir leikir gefi liðinu mun betri mynd af því hvar það stendur en auðveldir sigrar gegn veikari þjóðum. Kólumbía býr yfir blöndu af reynslu og hæfileikum sem fá lið geta státað af. Sóknarlínan er sérstaklega spennandi og í Luis Díaz eiga þeir leikmann sem getur breytt leikjum upp á eigin spýtur. Ef Kólumbíumenn ná að finna stöðugleikann sem einkenndi þá á leiðinni í úrslitaleik Copa América gætu þeir orðið eitt af hættulegri liðunum í útsláttarkeppninni.

Þjálfarinn: Néstor Lorenzo tók við landsliðinu árið 2022 eftir farsælan feril sem aðstoðarþjálfari víða - var hann bæði aðstoðarþjálfari Argentínu og Kólumbíu - og hefur hann náð að byggja upp samkeppnishæft og öflugt lið. Argentínumaðurinn hefur lagt áherslu á skipulagðan varnarleik án þess að fórna sóknargæðum og undir hans stjórn hefur Kólumbía aftur fest sig í sessi meðal sterkustu landsliða Suður-Ameríku.

Lykilmaður: Luis Diaz (Bayern München) er stærsta sóknarvopn Kólumbíu og einn skemmtilegasti kantmaður heimsfótboltans. Hraðinn, sprengikrafturinn og hæfileikinn til að búa til eitthvað úr engu gera hann að martröð fyrir varnarmenn. Þegar Diaz er upp á sitt besta getur hann nánast einn og sér breytt gangi leikja. Það sást vel hversu mikið Liverpool saknaði hans á tímabilinu sem var að klárast en hann var frábær eftir félagaskipti sín til Bayern.

Gaman að fylgjast með: James Rodríguez (Minnesota United) verður 35 ára þegar mótið klárast en enn vekur hann meiri athygli en flestir aðrir leikmenn Kólumbíu. Það var á HM 2014 sem hann sló í gegn fyrir alvöru, skoraði sex mörk og vann Gullskóinn sem markakóngur mótsins. Ferillinn hefur sveiflast síðan þá og spilatími hans með félagsliðum hefur verið takmarkaður að undanförnu og hefur hann mikið verið að flakka á milli félaga. Engu að síður virðist eitthvað sérstakt gerast þegar hann klæðist landsliðstreyjunni. Þetta verður að öllum líkindum hans síðasta heimsmeistaramót og því verður forvitnilegt að sjá hvort hann geti enn einu sinni galdrað fram augnablik sem minna á sumarið eftirminnilega í Brasilíu fyrir tólf árum.

Leikir á HM: Úsbekistan í Mexico City (17. júní); Lýðstjórnarveldið Kongó í Guadalajara (23. júní); Portúgal í Miami (27. júní).

17. Tyrkland
Eru í 22. sæti á heimslistanum.

Tyrkir eru eitt af þeim liðum sem erfitt er að horfa fram hjá þegar rætt er um möguleg óvænt lið á HM. Það eitt og sér ætti kannski að vera viðvörunarbjalla því fyrir EM 2020 voru þeir líka stimplaðir sem „svarti hesturinn“ og enduðu á því að tapa öllum þremur leikjum sínum. Nú virðist stemningin þó vera önnur, eða hvað? Tyrkland er á leið á sitt fyrsta heimsmeistaramót í 24 ár og kemur þangað með eina mest spennandi kynslóð sem landið hefur átt. Leikmenn á borð við Arda Guler og Kenan Yildiz gefa liðinu sköpunargáfu og gæði sem geta opnað hvaða vörn sem er, á meðan reyndari leikmenn veita nauðsynlegt jafnvægi. Undir stjórn Vincenzo Montella hefur liðið einnig fengið eitthvað sem oft hefur vantað hjá Tyrkjum: Stöðugleika. Tyrknesk landslið hafa lengi verið þekkt fyrir miklar tilfinningar, stórar sveiflur og óútreiknanleg úrslit. Montella hefur hins vegar náð að innleiða meiri aga og yfirvegun þó Guler og Yildiz fái alveg pláss til að láta ljós sitt skína. Það væri ekki skynsamlegt að setja Tyrki meðal sigurstranglegustu liða, en þeir eru klárlega lið sem getur valdið stærri þjóðum vandræðum. Að komast upp úr riðlinum ætti að vera raunhæft markmið og ef sjálfstraustið fer að vaxa gætu þeir orðið eitt af skemmtilegri liðum mótsins með sína mögnuðu stuðningsmenn.

Þjálfarinn: Vincenzo Montella er við stýrið hjá tyrkneska landsliðinu. Fyrrum ítalski landsliðsframherjinn var þekktur fyrir að vera með mikið markanef á sínum leikmannaferli og hefur á síðustu árum smám saman byggt upp traustan þjálfaraferil þar sem hann hefur stýrt stórum liðum á Ítalíu, meðal annars AC Milan, ásamt Sevilla á Spáni og Adana Demirspor í Tyrklandi. Undir hans stjórn hefur Tyrkland þróast úr liði sem gat tapað fyrir hverjum sem er yfir í lið sem veit nákvæmlega hvernig það vill spila og er með sterk gildi.

Lykilmaður: Arda Guler (Real Madrid) er stærsta stjarna tyrknesks fótbolta og einn hæfileikaríkasti ungi leikmaður heims. Vinstri fóturinn hans er úr gulli og hann virðist njóta þess sérstaklega að spila fyrir landsliðið. Þótt hann sé enn ungur verður mikið lagt á herðar hans í sumar þegar Tyrkir reyna að endurtaka afrek sín frá HM 2002 þegar þriðja sætið varð niðurstaðan.

Gaman að fylgjast með: Kenan Yildiz (Juventus) er félagi Guler í sóknarleiknum og er annar af tveimur gullmolum nýrrar kynslóðar í Tyrklandi. Sóknarmaðurinn hefur vakið mikla athygli á Ítalíu fyrir sjálfstraust sitt, tækni og gæði. Það sem gerir hann sérstaklega spennandi er að hann virðist ekki finna fyrir pressu. Fyrir leikmann á hans aldri er það sjaldgæfur eiginleiki og einn sem gæti reynst Tyrkjum ómetanlegur á stærsta sviði heimsfótboltans.

Leikir á HM: Ástralía í Vancouver (13. júní); Paragvæ í San Francisco (19. júní); Bandaríkin í Los Angeles (25. júní).

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner
banner