Sæti 24 til 21
Við höldum áfram að hita upp fyrir HM sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. Spennan er heldur betur farin að magnast fyrir þessum viðburði sem verður mögulega sá stærsti í íþróttasögunni.
Það mæta 48 lið til leiks en við á Fótbolta.net kynnum liðin til leiks í sérstakri kraftröðun (e. power rankings) þar sem við röðum liðunum niður frá því slakasta til hins besta. Við tökum fjögur lið fyrir í hverri frétt fram að móti og kynnum við liðin aðeins til sögunnar. Við höldum svo áfram kraftröðuninni á meðan mótinu stendur.
Núna er komið að þeim liðum sem við erum með í sætum 24 til 21 í þessari kraftröðun, við erum komin í efri hlutann.
Það mæta 48 lið til leiks en við á Fótbolta.net kynnum liðin til leiks í sérstakri kraftröðun (e. power rankings) þar sem við röðum liðunum niður frá því slakasta til hins besta. Við tökum fjögur lið fyrir í hverri frétt fram að móti og kynnum við liðin aðeins til sögunnar. Við höldum svo áfram kraftröðuninni á meðan mótinu stendur.
Núna er komið að þeim liðum sem við erum með í sætum 24 til 21 í þessari kraftröðun, við erum komin í efri hlutann.
24. Sviss
Eru í 19. sæti á heimslistanum
Sviss er eitt fyrirsjáanlegasta landslið Evrópu, og það er meint sem hrós. Þjóðin er að fara á sitt sjötta heimsmeistaramót í röð og hefur oftar en ekki fundið leiðir til að gera lífið erfitt fyrir stærri þjóðir inn á fótboltavellinum. Svisslendingar hafa komist upp úr riðlinum á fjórum af síðustu fimm HM-mótum, en hafa enn ekki fundið leiðina fram hjá 16-liða úrslitunum. Undir stjórn Murat Yakin hefur liðið verið afar stöðugt. Sviss tapaði ekki leik á árinu 2025 og vann meðal annars bæði Bandaríkin og Mexíkó. Fyrsta tap liðsins í langan tíma kom í æfingaleik gegn Þýskalandi í vor þar sem Svisslendingar töpuðu 4-3 í fjörugum leik. Fjórum dögum síðar sýndu þeir svo sitt rétta andlit með markalausu jafntefli gegn Noregi þar sem Erling Haaland og félagar fengu lítið svigrúm. Það verður líklega enginn fótboltaaðdáandi sem setur Sviss á topp lista yfir skemmtilegustu lið mótsins, en eins og svissneska bankakerfið er liðið öruggt, agað og áreiðanlegt. Sviss skorar kannski ekki mörg mörk, en það er líka afar erfitt að vinna það. Og þegar útsláttarkeppnin byrjar er það eiginleiki sem getur reynst verðmætari en margt annað.
Þjálfarinn: Murat Yakin hefur stýrt Sviss síðan árið 2021 og haldið áfram þeirri stöðugleikahefð sem landsliðið hefur byggt upp síðasta áratuginn. Hann fór með liðið í átta liða úrslit EM 2024 þar sem Sviss féll úr leik eftir vítaspyrnukeppni gegn Englandi. Yakin er fyrrum landsliðsmaður og hefur ekki reynt að finna upp hjólið, heldur byggt á þeim styrkleikum sem hafa gert Sviss að einu traustasta landsliði Evrópu.
Lykilmaður: Granit Xhaka (Sunderland) er hjarta og sál svissneska landsliðsins. Fyrirliðinn er kominn vel yfir þrítugt en hefur sjaldan spilað betur. Hann er leikjahæsti landsliðsmaður í sögu Sviss og stjórnar takti liðsins bæði innan vallar og utan. Þegar Sviss þarf að halda ró sinni í erfiðum leikjum er það yfirleitt Xhaka sem leiðir liðið áfram. Xherdan Shaqiri er ekki lengur með en Xhaka er þarna ennþá.
Gaman að fylgjast með: Breel Embolo (Rennes) var lengi vonarstjarnan í svissneskum fótbolta. Meiðsli hafa oft hægt á framgangi hans en síðustu mánuði hefur framherjinn verið að finna sitt besta form og þá sérstaklega með landsliðinu. Ef hann nær sér almennilega á strik í sumar gæti hann orðið lykillinn að því að Sviss fari loksins lengra en í 16-liða úrslitin.
Leikir á HM: Katar í San Francisco (13. júní); Bosnía og Hersegóvína í Los Angeles (18. júní); Kanada í Vancouver (24. júní).
23. Egyptaland
Eru í 29. sæti á heimslistanum.
Það hljómar nánast ótrúlega þegar litið er á sögu þjóðarinnar í afrískum fótbolta, en Egyptaland hefur aldrei unnið leik á heimsmeistaramóti. Sjöfaldir Afríkumeistararnir hafa aðeins komist fjórum sinnum á HM og í hvert skipti farið heim án þess að komast upp úr riðli. Nú ætla Egyptar sér loksins að breyta þeirri sögu. Þeir fara inn í mótið með spennandi sóknarleikmenn sem sitt aðalvopn. Mohamed Salah er andlit liðsins, en hann er langt frá því að vera einn. Omar Marmoush hefur fest sig í sessi á hæsta stigi í Evrópu og leikmenn á borð við Trezeguet, Zizo og Emam Ashour gefa Egyptum fleiri sóknarvopn en oft áður. Það hefur þó verið ákveðin togstreita í kringum liðið. Þjálfarinn Hossam Hassan var sjálfur einn mesti markaskorari í sögu afríska fótboltans, en í Afríkukeppninni 2025 spiluðu Egyptar oft varfærnislega og treystu meira á skyndisóknir en frumkvæði. Margir stuðningsmenn vilja sjá liðið nýta sóknargæðin betur og spila af meira hugrekki á HM. Riðillinn virðist bjóða upp á tækifæri. Íran og Nýja-Sjáland eru andstæðingar sem Egyptar telja sig geta unnið og þjóð sem hefur aldrei unnið HM-leik sér loksins möguleika á að skrifa nýjan kafla í sögu sína.
Þjálfarinn: Fáir menn eru jafn stór nöfn í egypskum fótbolta og Hossam Hassan. Hann spilaði 177 landsleiki á sínum leikmannaferli og var andlit landsliðsins um áratugaskeið. Nú er hann kominn aftur í aðalhlutverkið, að þessu sinni á hliðarlínunni. Hassan er þekktur fyrir mikinn eldmóð og sterkan karakter, en fyrir HM stendur hann frammi fyrir þeirri áskorun að finna rétta jafnvægið milli varfærni og sóknargleði.
Lykilmaður: Mohamed Salah (Liverpool) er einfaldlega besti leikmaður í sögu Egyptalands og einn fremsti fótboltamaður sem Afríka hefur alið af sér. Þetta gæti orðið síðasta heimsmeistaramót hans og því verður pressan gríðarleg á að ná árangri. Ef Egyptar ætla sér að komast upp úr riðlinum í fyrsta sinn mun mikið hvíla á herðum mannsins sem hefur borið vonir heillar þjóðar í meira en áratug.
Gaman að fylgjast með: Hamza Abdelkarim (Barcelona) er einn af fulltrúum nýrrar kynslóðar egypskra leikmanna sem margir heima fyrir binda miklar vonir við. Hann sló í gegn með yngri landsliðunum og hefur verið nefndur sem eitt mesta efni sem komið hefur fram í Egyptalandi um árabil. Hann var nýverið lánaður í varalið Barcelona.
Leikir á HM: Belgía í Seattle (15. júní); Nýja-Sjáland í Vancouver (21. júní); Íran í Seattle (26. júní).
22. Úrúgvæ
Eru í 17. sæti á heimslistanum.
Það er erfitt að vita nákvæmlega hvað maður fær frá Úrúgvæ þessa dagana. Á góðum degi getur liðið unnið bæði Argentínu og Brasilíu, eins og það gerði í undankeppninni. Á slæmum degi getur það tapað 5-1 fyrir Bandaríkjunum og vakið upp spurningar um hvort Marcelo Bielsa sé enn með stjórn á verkefninu. Undirbúningurinn fyrir HM hefur verið nokkuð sérstakur. Eftir niðurlæginguna gegn Bandaríkjunum í nóvember náði Úrúgvæ að róa umræðuna með jafntefli gegn Englandi og Alsír. Varnarleikurinn leit betur út og reynsluboltinn Fernando Muslera sneri óvænt aftur í markið eftir fjögurra ára fjarveru. Á sama tíma hefur sóknarleikurinn verið minna sannfærandi og mörkin ekki komið jafn auðveldlega og stuðningsmenn hefðu viljað sjá. Þetta er heldur ekki sama Úrúgvæ og heimurinn varð ástfanginn af fyrir fimmtán árum þegar Diego Forlán, Luis Suárez og Edinson Cavani leiddu liðið alla leið í undanúrslit HM. Sú kynslóð er horfin af sviðinu og ný hefur tekið við. Hún er kannski ekki jafn glæsileg á pappír, en hæfileikarnir eru engu að síður til staðar. Fá landslið í heiminum er jafn erfitt að meta. Úrúgvæ gæti hæglega dottið út fyrr en búist er við. En það gæti líka allt eins endað í átta liða úrslitum, eða lengra. Það er einfaldlega eðli þessa liðs.
Þjálfarinn: Marcelo Bielsa þarf vart kynningu. Argentínumaðurinn hefur haft áhrif á heilar kynslóðir þjálfara, þar á meðal Pep Guardiola og Mauricio Pochettino, og er af mörgum talinn einn áhrifamesti hugsuður nútímafótboltans. Hann hefur hins vegar oft verið gagnrýndur fyrir að keyra leikmenn sína út og leggja of mikið á þá. Þegar Bielsa er við stjórnvölinn er þó eitt víst; það verður aldrei leiðinlegt.
Lykilmaður: Federico Valverde (Real Madrid) fer fyrir nýrri kynslóð af landsliði Úrúgvæ. Luis Suarez og Edinson Cavani eru ekki þarna lengur og Valverde fer fyrir verkefninu. Miðjumaðurinn frá Real Madrid er einn af fáum leikmönnum heims sem virðist geta hlaupið endalaust án þess að missa gæði úr leik sínum. Hann tengir saman vörn og sókn, skorar mikilvæg mörk og er orðinn hinn eðlilegi leiðtogi liðs sem er að stíga út úr skugga Suarez og Cavani.
Gaman að fylgjast með: Darwin Nunez (Al-Hilal) er líklega einn áhugaverðasti framherji heimsfótboltans. Á sumum dögum lítur hann út eins og óstöðvandi markaskorari sem getur skorað gegn hverjum sem er. Á öðrum dögum virðist hann geta klúðrað færum sem virðist ómögulegt að klikka á. Það er þó einmitt það sem gerir hann svo heillandi.
Leikir á HM: Sádi-Arabía í Miami (15. júní); Grænhöfðaeyjar í Miami (21. júní); Spánn í Guadalajara (26. júní).
21. Bandaríkin
Eru í 16. sæti á heimslistanum.
Það eru miklar væntingar gerðar til Bandaríkjanna fyrir mótið enda eru þeir á heimavelli og sérstaklega gerir þeirra eigin þjóð væntingar til þeirra. En maður veit ekki alveg hvar maður hefur Bandaríkin núna áður en mótið hefst. Þeir eiga sína góðu daga eins og í 5-1 sigrinum gegn Úrúgvæ en svo líta þeir út eins og lið sem hefur aldrei spilað saman en þannig var sagan í leikjunum í mars síðastliðnum. Þetta hefur verið ákveðin saga undir stjórn Mauricio Pochettino. Þegar Argentínumaðurinn var ráðinn voru væntingarnar gríðarlegar. Bandaríkjamenn höfðu fengið einn eftirsóttasta þjálfara heims til að undirbúa liðið fyrir HM á heimavelli og margir töldu að þjóðin gæti loksins tekið næsta skref á alþjóðasviðinu. Enn sem komið er hefur það þó ekki alveg gerst. Christian Pulisic, Weston McKennie, Chris Richards, Folarin Balogun og fleiri leikmenn spila allir á hæsta stigi í Evrópu. Spurningin er hvort Pochettino nái að móta þá í öflugt lið sem heimafólkið getur verið stolt af og skapað enn meiri áhuga á íþróttinni í Bandaríkjunum. Heimavöllurinn gæti reynst gríðarlegur kostur, en kannski galli líka. Bandaríkin hafa aldrei farið lengra en í undanúrslit HM árið 1930 og nú eru væntingarnar meiri en nokkru sinni fyrr. Pressan verður líka meiri en nokkru sinni fyrr.
Þjálfarinn: Mauricio Pochettino tók við Bandaríkjunum í fyrra og er maðurinn sem á að leiða liðið í gegnum mótið á heimavelli. Argentínumaðurinn gerði Tottenham að einu besta liði Evrópu, fór með félagið í úrslit Meistaradeildarinnar og hefur einnig stýrt bæði Paris Saint-Germain og Chelsea. Verkefnið í Bandaríkjunum er þó öðruvísi en allt sem hann hefur tekist á við áður: Að leiða þjóð sem þráir að verða stórveldi í fótboltaheiminum.
Lykilmaður: Christian Pulisic (AC Milan) hefur borið bandaríska landsliðið á herðum sér í nærri áratug. Hann er enn aðeins 27 ára gamall en er þegar orðinn einn markahæsti leikmaður landsliðsins frá upphafi. Formið hefur verið sveiflukennt að undanförnu og hann fór illa með nokkur góð færi í marsglugganum, en þegar Bandaríkin þurfa á töfrum þá er leitað til hans. Bandaríkjamenn horfa á hann sem Lebron James fótboltans, eins galið og það hljómar, en það segir til um hversu stórt margir Bandaríkjamenn líta á hann.
Gaman að fylgjast með: Folarin Balogun (Mónakó) er kannski táknmynd nýrra tíma í bandarískum fótbolta. Hann fæddist í New York, ólst upp í Englandi, lék fyrir yngri landslið Englendinga en valdi að lokum Bandaríkin. Framherjinn hefur lengi verið talinn búa yfir hæfileikum til að verða einn hættulegasti sóknarmaður sinnar kynslóðar og HM á heimavelli gæti orðið mótið þar sem hann springur endanlega út á stærsta sviðinu.
Leikir á HM: Paragvæ í Los Angeles (12. júní); Ástralía í Seattle (19. júní); Tyrkland í Los Angeles (25. júní).
02.06.2026 21:00
Kraftröðunin fyrir HM: Sonur goðsagnar og gestgjafar
01.06.2026 11:00
Kraftröðunin fyrir HM: Gæti verið að byrja fyrir England
29.05.2026 18:00
Kraftröðunin fyrir HM: Snýr aftur 20 árum síðar
28.05.2026 17:10
Kraftröðunin fyrir HM: Fyrrum aðstoðarmaður Sir Alex mætir
21.05.2026 10:30
Kraftröðunin fyrir HM: Tóku metið af okkur Íslendingum
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!


