09.07.04 - 13:11
Magnús Már Einarsson
Hasselbaink til Middlesbrough (Staðfest)

Hasselbaink með treyju Middlesbrough í dag.


Hasselbaink með treyju Middlesbrough í dag.

Sóknarmaðurinn Jimmy Floyd Hasselbaink hefur gert tveggja ára samning við Middlesbrough. Hinn 32 ára gamli Hasselbaink var leystur undan samningi hjá Chelsea fyrir skömmu en hann var undir smásjá Celtic, Rangers, Fulham og japönsku liði. Þessi hollenski framherji er þar með þriðji leikmaðurinn sem að kemur til Boro í vikunni en hinir eru Michael Reiziger og Mark Viduka. Þar með er liðið komið með tvo framherja sem að hafa sannað sig í úrvalsdeildinni, þá Viduka og Hasselbaink en liðið hefur ekki haft afburðarmarkaskorara og á síðustu leiktíð var Szilard Nemeth markahæstur með níu mörk.
"Ég er mjög spenntur, mjög ángæður að fá þetta tækifæri. Ég heyrði um áhuga Middlesbrough fyrir nokkrum vikum og ég varð strax áhugasamur. Ég get ekki beðið eftir því að byrja." Sagði Hasselbaink í dag.
