Fotbolti.net
09.07.04 - 13:39
Magnús Már Einarsson

Sherwood til Coventry (Staðfest)

Sherwood til Coventry (Staðfest)
Canon
Miðjumaðurinn Tim Sherwood hefur skrifað undir tveggja ára samning við Coventry. Hinn 35 ára gamli Sherwood sem að var leystur undan samningi hjá Portsmouth í lok tímabilsins segist hlakka til að spila með Coventry og vonast til að komast upp í efstu deild eins og hann hefur gert bæði með Portsmouth og Blackburn Rovers. Sherwood er nýbúinn að jafna sig á fótbroti en hann tvíbrotnaði í leik með Portsmouth í desember. Hann er fjórði leikmaðurinn sem að Coventry fær en hinir eru Bjarni Guðjónsson, Stephen Hughes og Neil Wood.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.