Fotbolti.net
09.07.04 - 16:12
Hafliði Breiðfjörð

Davis til Tottenham og Postiga til Porto (Staðfest)

Davis til Tottenham og Postiga til Porto (Staðfest)
Canon
Tottenham seldu í dag Helder Postiga aftur til Porto á 7,5 milljónir Evra (5 milljónir punda) og fengu í staðinn miðvallarleikmanninn Pedo Mendes á 3 milljónir en Mendes gerði við þá fjögurra ára samning. Postiga gekk í raðir Tottenham frá Porto á 9,3 milljónir Evra (6,25 milljónir punda) í fyrra en hann skoraði aðeins eitt mark í 19 leikjum með félaginu. Í yfirlýsingu frá Spurs til hlutabréfamarkaðarins í dag kom einnig fram að félagið hafi komist að samkomulagi um kaupverð á Sean Davis miðvallarleikmanni Fulham.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.