09.07.04 - 16:51
Hafliði Breiðfjörð
Arsenal lánar Stack til Millwall (Staðfest)




Millwalll hafa fengið Graham Stack varamarkvörð Arsenal á láni út næsta tímabil. Stack sem er 22 ára gamall landsliðsmaður Írlands fór með Millwall í æfingaferð til Kanada. Hann var þriðji markvörður á síðustu leiktíð á eftir Jens Lehmann og Stuart Taylor en spilaði með Arsenal í Carling Cup að undanúrslitaleiknum. Millwall mun leika í ensku 1.deildinni á næstu leiktíð sem að vísu mun heita Coca Cola Meistaramótið en 1. deild verður deildin sem hét 2. deild á síðustu leiktíð. Þá verður Millwall einnig í UEFA Cup eftir að hafa komist í úrslitaleik FA Cup.
