09.07.04 - 19:44
Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Ingi skrifar undir hjá Arsenal (Staðfest)




Ólafur Ingi Skúlason hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við Arsenal en eins og við sögðum frá fyrr í sumar var honum boðinn nýr samningur í apríl. Þetta kom fram á vefsíðu gamla félagsins hans, Fylkis, Fylkir.com nú í kvöld. Þar kom einnig fram að hann hefur þegar hafið æfingar með félaginu og mun spila með þeim æfingaleiki á næstunni og í kjölfarið mun verða ákveðið hvort hann verði lánaður til Hollands eða Belgíu eða hvort hann verði áfram hjá Arsenal.
Sjá einnig:
Einkaviðtal Fótbolta.net frá 14. júní síðastliðnum
Sjá einnig:
Einkaviðtal Fótbolta.net frá 14. júní síðastliðnum
