09.07.04 - 20:03
Hafliði Breiðfjörð
Sölvi Geir Ottesen semur við Djurgården (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sölvi Geir Ottesen miðvörður Víkinga skrifaði nú í kvöld undir fjögurra og hálfs árs samning við sænska úrvalsdeildarliðið Djurgården. Samningurinn er með þeim fyrirvara að Sölvi standist læknisskoðun sem hann fer í næstkomandi þriðjudag. Útsendarar frá félaginu sáu Sölva í leiknum gegn Grindavík í gærkvöld og leist vel á þó leikmaðurinn hafi fengið að líta rauða spjaldið í leiknum. Leikurinn gegn Grindavík var síðasti leikur hans fyrir Víking.
Á vefsíðu félagsins í kvöld er Sölvi sagður hinn íslenski Nesta, að hann sé kraftmikill miðvörður með metnaðinn í að ná langt.
Sölvi fær treyjunúmer 5 hjá félaginu.
Sölvi fær treyjunúmer 5 hjá félaginu.
