Lionel Messi neitaði að taka í hönd dómarans Cuneyt Cakir eftir leik Barcelona og Napoli í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gærkvöldi.
Umdeilt atvik átti sér stað í fyrri hálfleik þegar Messi skoraði en VAR skoðaði atvikið og dæmdi markið af og var útskýringin á því að Messi hafi notað höndina sér til hjálpar í aðdragandanum.
Umdeilt atvik átti sér stað í fyrri hálfleik þegar Messi skoraði en VAR skoðaði atvikið og dæmdi markið af og var útskýringin á því að Messi hafi notað höndina sér til hjálpar í aðdragandanum.
Fyrirliði Börsunga var ekki sáttur í leikslok við tyrknesa dómarann Cakir þar sem hann neitaði að þakka honum fyrir leikinn og lét þess í staðinn vel valin orð falla og veifaði fingri sínum í átt að dómaranum áður en hann gekk burt.
Barcelona mætir Bayern Munchen í 8-liða úrslitunum en Bayern kjöldróg Chelsea 7-1 í einvígi sínu.
Wait i just clocked it was the referee who Messi refused to shake hands with and not Manolas i-
— CH➐ (@BarcaLionel_FC) August 8, 2020
pic.twitter.com/3tXZrbjRAz
Athugasemdir