09.09.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Aldair til Genoa. (Staðfest)

Aldair.


Aldair.

Genoa hefur fengið gamla brýnið Aldair til sín frá Roma. Þessi 38 ára varnarmaður kemur á frjálsri sölu en hann hefur spilað seinustu 13 ár með Roma og leikið yfir 300 leiki. Genoa fær Aldair eiginlega í afmælisgjöf en félagið fagnar 110 ára afmæli sínu um þessar mundir og er þetta elsta liðið á Ítalíu. Líklegast þótti að þessi Brasilíumaður færi til Brescia í sumar en hann náði ekki að semja við þá. Hann segir að hann hafi ekki viljað koma og spila á móti Roma og því hafi hann ákveðið að fara til liðs í Serie B.
