Fotbolti.net
09.09.17 - 20:43
Lilja Dögg Valþórsdóttir

Óli: Leiðinlegt þegar markmiðin fjara frá manni

Auglýsing
Ólafur og Andrés Ellert ræða málin sín á milli í leiknum í dag

Ólafur og Andrés Ellert ræða málin sín á milli í leiknum í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Borgun
“Já, mjög svekktur. Leiðinlegt að tapa leikjum. En við vorum nálægt því í dag. Svekktur með endinn á þessu en við bara gerðum ekki nógu vel,” sagði Ólafur Guðbjörnsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir tap gegn ÍBV í úrslitaleik Borgunarbikars kvenna í dag.
Það var örugglega svolítið sjokk fyrir ykkur að fá á ykkur mark strax á 4. mínútu?

“Já, frekar ódýrt mark sem við gáfum og við vorum í smá brasi svona fyrst eftir það. En svo tókum við yfirhöndina í seinni hlutanum á fyrri hálfleik og kláruðum tvö góð mörk. Og svo fengum við fleiri færi í þessum leik en við vorum ekki nógu beitt í seinni hálfleik. En það munar litlu, þetta kom á 89. mínútu eða eitthvað svoleiðis hjá þeim. Þær gerðu það vel en við gleymdum okkur aðeins. Og það var dýrt. Og svo þetta víti í lokin og aðdragandinn að því sem ég var ekki sáttur með. En þetta fór svona og við verðum bara að sætta okkur við það.”

Hljóta að vera ákveðin vonbrigði að ná ekki bikarmeistaratitli eftir að hafa spilað ykkur útúr Íslandsmótinu?

\"Jájá, bara alveg óháð Íslandsmótinu. Það eru bara alltaf vonbrigði að ná ekki titli þegar maður er kominn í úrslitaleik. Þessi leikur var ekki til að vinna upp eitthvað í Íslandsmótinu, við erum óánægð með árangurinn í Íslandsmótinu og við erum svekkt að hafa ekki náð þessu. En við erum mjög ánægð með að hafa komist í þennan úrslitaleik. En það er bara alltaf þannig að þegar maður er í úrslitaleik þá vill maður vinna. Þetta er erfitt en við komumst í gegnum þetta.\"

Þó að ríkjandi Íslandsmeistarar Stjörnunnar vinni ekki bikarmeistaratitil né Íslandsmeistaratitil í ár þá eru þær komnar í 32-liða úrslit í Meistaradeild Evrópu.

\"Jájá, nú er það í lok mánaðarins, eða byrjun október, þannig að við eigum eftir tvo leiki í deildinni og svo tekur það við. Það er ennþá eftir en það er leiðinlegt þegar markmiðin fjara frá manni. Þannig að það verður svona þyngra en það verður gaman að komast í Meistaradeildina og reyna okkur þar,\" sagði Óli um framhaldið hjá liðinu.

Viðtalið við Óla má sjá í heild sinni í spilaranum hérna fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.