Fotbolti.net
09.11.04 - 15:06

Robson tekur við WBA (Staðfest)

Robson tekur við WBA (Staðfest)
Canon
Bryan Robson hefur verið ráðinn stjóri WBA. Gary Megson fór frá liðinu eftir fjögur ár við stjórnvölin í kjölfar ummæla sinna um að hann ætlaði að sitja út tímabilið í stjórastól liðsins. Var hann orðinn valtur í sessi og ákvað stjórn félagsins að láta hann fara fyrir vikið.
Robson er fyrrum leikmaður WBA en hann kom þaðan frá Bradford eftir að þeir féllu um deild. Hann skoraði 46 mörk í 249 leikjum fyrir WBA áður en hann gekk til liðs við Manchester United árið 1981 fyrir 1,5 milljónir punda.

Núna er hann kominn aftur "heim" ef svo má að orði komast og stendur nú frammi fyrir því erfiða verkefni að halda liðinu í deildinni. Fyrsti leikur hans verður á sunnudaginn gegn Middlesbrough en hann stjórnaði þeim einmitt í sjö ár eftir að hann hætti að spila knattspyrnu.

Robson spilaði 90 landsleiki fyrir Englands hönd og var fyrirliði í 65 þeirra leikja. Hann snýr nú aftur í Úrvalsdeildina eftir þriggja ára fjarveru. Robson náði frábærum árangri með Middlesbrough og fékk menn eins og Juninho og Fabrizio Ravanelli á Riverside. Robson fór frá liðinu árið 2001 og tók hann svo við Bradford og átti þar erfiða tíma.

Robson neitaði svo starfi sem landsliðsþjálfari Nígeríu sem buðu honum starfið! Glenn Hoddle, Gordon Strachan and Gerard Houllier voru allir orðaðir við starfið hjá WBA en Robson var tekinn frammyfir þá enda hetja hjá liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.