10.01.10 - 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Felipe Caicedo til Malaga (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Spænska úrvalsdeildarfélagið Malaga hefur unnið kapphlaupið um framherjann Felipe Caicedo eftir að hafa komist að samkomulagi við Manchester City um kaupverðið á Ekvadoranum.
Félagið hefur einnig rætt við Caicedo en Hull City var einnig sagt berjast um undirskrift hans. Caicedo, sem spilaði fyrri hluta tímabilsins á láni hjá Sporting í Portúgal, ákvað þó að halda til Spánar.
Malaga staðfesti kaupin í dag en mun kynna hann opinberlega fyrir fjölmiðla næstkomandi mánudag. Eins og er er liðið það þriðja neðsta í spænsku La Liga, tveimur stigum frá öruggu sæti.
Það kemur ekki á óvart að Caicedo skuli yfirgefa Manchester City en á undan honum í goggunarröðinni voru menn á borð við Emmanuel Adebayor, Craig Bellamy, Roque Santa Cruz, Robinho og fleiri.

Heimild: Sky