Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 10. janúar 2021 21:27
Ívan Guðjón Baldursson
Aguero í sóttkví - Missir af næstu leikjum
Mynd: Getty Images
Sergio Agüero missir af næstu leikjum Manchester City þar sem hann er í sóttkví eftir að hafa átt í nánum samskiptum við manneskju sem smitaðist af Covid-19.

Aguero átti að spila sinn fyrsta byrjunarliðsleik síðan í október þegar Man City mætti Birmingham í FA-bikarnum í dag en var ekki í hóp.

Argentínski sóknarmaðurinn er ekki með veiruna sem stendur en það getur tekið nokkra daga fyrir hana að birtast og því ekki hægt að leyfa Agüero að umgangast annað fólk næstu tíu daga.

Agüero missir af leikjum gegn Brighton á miðvikudaginn og Crystal Palace um næstu helgi.

Þetta er mikill skellur bæði fyrir Agüero og Man City, þar sem sóknarmaðurinn hefur fengið lítinn spiltíma sökum meiðsla og hefur City verið án margra leikmanna vegna veirunnar skæðu.
Athugasemdir
banner
banner