Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   þri 10. mars 2026 20:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Siggi Höskulds með Atla Sigurjónssyni sem skoraði fimm mörk í kvöld.
Siggi Höskulds með Atla Sigurjónssyni sem skoraði fimm mörk í kvöld.
Mynd: Ármann Hinrik
5-1 sigur í kvöld.
5-1 sigur í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var góð frammistaða. Erfiður leikur andlega á margan hátt. Við skiluðum þessu verki nokkuð vel," sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, eftir 5-1 sigur gegn Val í Lengjubikarnum í kvöld.

Athygli vakti að byrjunarlið Vals var að mestu skipað reynslulitlum mönnum sem hafa litla eða nær enga reynslu af meistaraflokki liðsins.

„Þeir hljóta bara að vera að stilla upp sínu besta liði. Það er stutt í mót og furðulegt að leikmenn eins og Tryggvi, Birkir og Hólmar komist ekki í hóp mánuði fyrir mót. Mér finnst það skrítið."

Er svekkjandi að það komi ekki sterkara lið norður?

„Nei, það skiptir mig engu máli. Ég vel ekki liðið þeirra og þeir velja ekki liðið mitt. Ég trúi ekki öðru en að þetta sé sterkasta liðið þeirra," sagði Siggi.

Býstu við öðru Valsliði þegar Þórsarar mæta þeim eftir mánuð í Bestu deildinni?

„Ég geri mér ekki grein fyrir því. Þetta er einhver stefna sem er mjög skemmtileg og gengur vel hjá þeim. Ég geri mér ekki grein fyrir því hvernig liði þeir stilla upp. Ég ætla ekki að velja liðið þeirra."

Siggi er ánægður með stöðuna á sínu liði þegar stutt er í Bestu deildina. „Eins og staðan er núna líst mér rosalega vel á okkur," sagði hann.

Þórsarar eru á leið í undanúrslit í Lengjubikarnum.

„Það er bara flott. Ég vona að við mætum liði með sömu stemningu á bekknum og andstæðingur okkar í dag. Þetta var eins og að vera mættur á Pollamótið aftur. Ég vona að það verði svipuð stemning á bekknum og í dag. Þetta var skemmtilegt."

Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner