10.05.12 - 06:00
Mist Rúnarsdóttir
Alexandra Toth í Fylki (staðfest)

Alexandra í leik gegn Fylki síðastliðið sumar

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Alexandra í leik gegn Fylki síðastliðið sumar

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Ungverska landsliðskonan Alexandra Toth er gengin til liðs við Fylki en hún fékk leikheimild með liðinu í dag og verður því klár í slaginn þegar flautað verður til leiks í Pepsi-deildinni á sunnudag.
Alexandra kemur til Fylkis frá Þrótti en hún lék með Þrótturum í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar. Hún var þar í lykilhlutverki og var valin besti leikmaður liðsins eftir tímabilið ásamt Valgerði Jóhannsdóttur.
Það verður fróðlegt að sjá hvernig Alexöndru mun takast til í appelsínugula búningnum í sumar en hún getur bæði leikið sem varnar- og miðjumaður.
Það verður fróðlegt að sjá hvernig Alexöndru mun takast til í appelsínugula búningnum í sumar en hún getur bæði leikið sem varnar- og miðjumaður.
