10.05.12 - 11:00
Magnús Már Einarsson
KA fær bakvörð sem var á mála hjá Newcastle (Staðfest)

Darren Lough í æfingaleik með Newcastle gegn Juventus árið 2007.

Mynd: Getty Images

KA hefur samið við vinstri bakvörðinn Darren Lough en hann mun leika með liðinu í fyrstu deildinni í sumar.
Lough, sem er 23 ára, lék með unglingaliðum Newcastle á sínum tíma sem og varaliði félagsins. Hann kom einnig í sögu í æfingaleikjum hjá aðalliðinu en á endanum fékk hann ekki áframhaldandi samning.

,,Þetta er öflugur strákur og kemur til með að styrkja okkar lið,\" sagði Gunnlaugur Jónsson þjálfari KA við Fótbolta.net í dag.
,,Hann kom hérna í vikunni og er búinn að mæta á tvær æfingar og lítur vel út. Hann er uppalinn hjá Newcastle og átti fínan yngri flokka feril þar þó að hann hafi ekki fengið samning að lokum hjá aðalliðinu.\"
Lough hefur meðal annars leikið með utandeildarliðinu Ashington eftir að hann yfirgaf herbúðir Newcastle.
Lough ætti að geta leikið með KA gegn ÍR í fyrstu umferðinni í fyrstu deildinni á laugardag.