Fotbolti.net
10.05.12 - 16:30
Magnús Már Einarsson

Hlynur Hauksson í Þrótt (Staðfest)

Hlynur Hauksson í Þrótt (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Þróttur hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í fyrstu deildinni en félagið hefur fengið vinstri bakvörðinn Hlyn Hauksson á láni frá ÍA.
Hlynur, sem er 24 ára, hefur verið í námi í Bandaríkjunum í vetur og ekki tekið þátt í undirbúningstímabilinu með skagamönnum.

Hlynur er uppalinn hjá Breiðabliki en hann gekk til liðs við ÍA árið 2008. Meiðsli hafa sett mikið strik í reikninginn hjá Hlyni en hann fótbrotnaði bæði sumarið 2010 og í fyrra.

Árið 2010 lék Hlynur einn leik í fyrstu deildinni áður en hann meiddist en í fyrra kom hann við sögu í fimm leikjum með skagamönnum.

Hlynur er kominn með leikheimild með Þrótti og getur leikið með liðinu gegn Hetti í fyrstu umferðinni í fyrstu deildini á laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.