10.05.12 - 18:30
Brynjar Ingi Erluson
Dick Advocaat ráðinn þjálfari PSV (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Dick Advocaat, þjálfari rússneska landsliðsins hefur gert eins árs samning við hollenska stórliðið PSV Eindhoven.
Dick, sem er 64 ára gamall hefur þjálfað rússneska landsliðið frá árinu 2010, en hann hefur stýrt þeim í riðlakeppni Evrópumótsins sem fer fram í Úkraínu og Póllandi í sumar.
Hann hættir þjálfun rússneska liðsins eftir mótið og hefur nú skrifað undir eins árs samning við sitt gamla félag, PSV Eindhoven þar sem hann tekur við af Phillip Cocu sem hefur stýrt liðinu tímabundið.
Cocu þjálfar varaliðs félagsins á næsta tímabili og Advocaat til stoðar verður Ernest Faber, en Advocaat er að snúa aftur til félagsins eftir fjórtán ára fjarveru. Hann stýrði liðinu til sigurs í hollenska bikarnum árið 1996 og þá deildinni 1997 áður en hann hætti með liðið ári síðar.

Heimild: FIFA