10.05.12 - 20:45
Magnús Már Einarsson
David Disztl í KA (Staðfest)

David Disztl fagnar marki með KA sumarið 2009.

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

KA hefur fengið ungverska markaskorarann David Disztl í sínar raðir á nýjan leik en hann var kynntur til leiks á leikmannakynningu félagsins í kvöld.
Disztl skoraði fimmtán mörk með KA í fyrstu deildinni sumarið 2009 og ári síðar skoraði hann sjö mörk með liðinu.
Í fyrra fór hann yfir ánna og lék með nágrönnum KA í Þór í Pepsi-deildinni en þar skoraði hann samtals tíu mörk í 23 deildar og bikarleikjum.
KA hefur verið í leit að framherja í allan vetur og Disztl er ætlað að leiða línuna hjá liðinu í sumar.
,,Eftir mikla leit og lítinn árangur opnaðist sá möguleiki að fá David Distzl að nýju til Akureyrar og það var frábær niðurstaða,\" sagði Gunnlaugur Jónsson þjálfari KA við Fótbolta.net í kvöld.
,,Hér hefur hann verið síðustu 3 sumur og hefur sannað sig sem markaskorari hér á landi. Við teljum að þeir hæfileikar sem hann hefur passi fullkomnlega inní þann leikstíl sem okkar lið hefur.\"
Disztl gæti leikið með KA gegn ÍR í fyrstu umferðinni í fyrstu deildinni á laugardag sem og vinstri bakvörðurinn Darren Lough sem samdi við félagið í morgun.