10.06.04 - 10:14
Magnús Már Einarsson
Makukula til Sevilla (Staðfest)




Sevilla hefur keypt framherjann sterka Ariza Makukula frá franska liðinu Nantes. Makukula sem að er með portúgalskt vegabréf lék með Real Valladolid í La Liga í vetur en þar var hann í láni frá Nantes. Kappinn sem að er fæddur í Kongó skoraði átta mörk í La Liga en meiddist illa á hné í febrúar og lék ekki meira með Valladolid á tímabilinu.
Kaupverðið fékkst ekki uppgefið en það er talið vera um tvær milljónir punda. Sevilla hafði meðal annars betur í baráttu við Atletico Madrid og Real Betis um þjónustu Makukula en spennandi verður að sjá samvinnu hans og Julio Cesar Baptista í framlínu Sevilla á næsta ári. Brasilíumaðurinn Baptista varð næstmarkahæstur í La Liga á nýliðnu tímabili og ljóst er að hann og Makukula verða skæðir á næsta tímabili.
