10.06.04 - 10:17
Magnús Már Einarsson
Van Damme til Southampton (Staðfest)

Van Damme er hér til vinstri.


Van Damme er hér til vinstri.

Southampton hefur gengið frá kaupum á vinstri bakverðinum Jelle van Damme frá Ajax og er kaupverðið talið vera um 2,5 milljónir punda. Hinn tvítugi van Damme á sjö landsleiki að baki með belgíska landsliðinu en hann mun berjast um stöðu vinstri bakvarðar hjá Southampton við Graeme Le Saux.
Van Damme hóf feril sinn hjá Beveren en fór svo til Sporting Lokeren, liðið úr heimabæ sínum. Germinal Beerschot Antwerp var næsti áfangastaður kauða sem að svo var lánaður til Ajax. Hann var svo seldur til hollenska liðsins í mars árið 2002 en hefur ekki átt fast sæti í liði Ajax að undanförnu þar sem að Brasilíumaðurinn Maxwell er á undan í goggunarröðinni.
