Fotbolti.net
10.06.12 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Farid kominn aftur til HK (Staðfest)

Farid kominn aftur til HK (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

HK í 2. deild hefur heldur betur fengið vænan styrk fyrir seinni hluta sumarsins, en Farid Abdel-Zato Arouna er kominn aftur til félagsins.
Farid, sem er 20 ára gamall miðjumaður, spilaði sjö leiki með HK á síðasta tímabili í fyrstu deildinni.

Hann kom upphaflega hér til lands til að leika með FH, en hann lék með öðrum flokk félagsins ásamt því að vera í hóp hjá meistaraflokknum.

Hann er fæddur í Tógó, en þar hefur hann dvalið undanfarna mánuði. Hann ætti því að vera klár í slaginn með HK, þar sem hann hefur ekki skipt um lið frá því hann fór eftir síðasta tímabil.

Heimild: HK.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.