Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 10. júní 2021 20:01
Victor Pálsson
Dortmund hafnaði fyrsta tilboði Man Utd
Mynd: EPA
Fyrr í dag var greint frá því að Manchester United væri búið að bjóða í sóknarmanninn Jason Sancho.

Sancho spilar með Borussia Dortmund í Þýskalandi og hefur lengi verið á radarnum hjá enska félaginu.

Nú er greint frá því að opnunartilboði Man Utd hafi verið hafnað um leið en það hljóðaði upp á 67 milljónir punda.

Dortmund vill fá hærri upphæð fyrir enska landsliðsmanninn og eru líkur á að Man Utd leggi fram annað tilboð.

Sancho mun spila með enska landsliðinu á EM alls staðar í sumar en mótið hefst á morgun.

Man Utd reyndi einnig að fá Sancho á síðasta ári en náði þá aldrei samkomulagi við Dortmund um kaupverð.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner