Antoine Griezmann fékk högg í æfingalandsleik Frakklands gegn Búlgaríu á dögunum.
Hann er vel marinn eftir höggið og gat ekki æft með restinni af liðinu í dag. Hann og Karim Benzema æfðu einir innanhúss, en Benzema fór meiddur af velli í leiknum gegn Búlgörum.
Þeir eru báðir tæpir fyrir fyrsta leik Frakka á Evrópumótinu sem verður gegn stórveldi Þjóðverja. Það eru fimm dagar í leikinn og er líklegra að Griezmann nái honum heldur en Benzema.
Frakkar eru í dauðariðli mótsins ásamt Þjóðverjum og Portúgölum en þessi þrjú lið eru talin vera meðal fimm sigurstranglegustu liða mótsins.
Athugasemdir