Chelsea og Man Utd berjast um miðjumann - Palace vill leikmann Bayern og Brennan Johnson
Jóladagatalið: Vidic er fokking leiðinlegur
Viktor Örn: Sjóaðir í að standa upp við mótlæti
Andri Rafn: Ákveðinn léttir og mikil gleði að ná fyrsta sigrinum
Jóladagatalið: Baldur Sig og lága kvöldsólin
Höskuldur: Við Íslendingar ættum að fara kannast við þetta lið
Aron Snær: Svo hringir bara Kári Árna
Ólafur Ingi: Þá held ég að sigurinn skili sér
Jóladagatalið: Vona að þeir hafi verið á baki en ekki með hann í lúkunum
Jóladagatalið: Hvernig er að ganga í Feneyjum?
Jóladagatalið: Misskildi spurningu fréttamanns - „Setti hársprey og svona“
Jóladagatalið: Hægðir og lægðir
Jóladagatalið: Lárus Orri lét stjórnarmenn heyra það - „Vilja eignast vini upp á KA-svæði“
Jóladagatalið: Langbest að fá heyrnarlausa menn til að dæma leikinn
Jóladagatalið: Cillessen rauk úr viðtali eftir tap á Laugardalsvelli
Jóladagatalið: Gylfi lét boltum rigna yfir Jóa Berg
Aron Einars: Spenntur fyrir Davíð og öllu sem hann stendur fyrir
Jóladagatalið: Ólafur Karl Finsen í kleinu
Ray Anthony: Eigum eftir að styrkja okkur betur
Hjörvar Daði: Markmiðið er að fara upp
Damir: Auðveld ákvörðun að velja Grindavík
   lau 10. júní 2023 17:07
Kári Snorrason
Hemmi Hreiðars: Myndum vinna 99 af 100 svona leikjum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV fór í heimsókn á Meistaravelli fyrr í dag. Leikar enduðu 1-1 en Eyjamenn sýndu mikla yfirburði. Hermann Hreiðarsson mætti ánægður í viðtal eftir leik.

Lestu um leikinn: KR 1 -  1 ÍBV

„Ég er bara svakalega ánægður og stoltur af liðinu. Við spiluðum þannig fótboltaleik að við myndum vinna 99 af 100 svona leikjum. Sláin tvisvar, stöng og brennum af víti. 4-0 hefði ekki orðið ósanngjarnt, út frá dauðafærum það er bara staðreynd. Ég er ótrúlega stoltur af liðinu. Elsti útispilarinn hjá okkur er 1999 módel."

ÍBV lentu óvænt undir.

„Auðvitað er fúlt að fá á sig mark, sérstaklega af því að það var aukaspyrna, klár aukaspyrna þegar þeir skora. En við héldum bara áfram og sköpuðum okkur ekki eitt heldur tvö þrjú færi eftir það, dauðafæri engin hálffæri. Við hættum ekkert héldum áfram að vera betri aðilinn."

Meiðslalistinn er langur hjá ÍBV

„Það er tveggja vikna pása núna, það verður nóg að gera hjá sjúkraþjálfurunum og vonandi sem styðst í alla. Það styttist í þá allaveganna."

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner