Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 10. júní 2026 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Bjóða Alex Scott nýjan samning með riftunarákvæði
Mynd: Bournemouth
Miðjumaðurinn efnilegi Alex Scott er aðeins með tvö ár eftir af samningi sínum við Bournemouth og er eftirsóttur af öðrum liðum í enska boltanum.

Bournemouth hefur því ákveðið að bjóða leikmanninum nýjan samning með riftunarákvæði, svipað og félagið gerði við Dean Huijsen og Rayan.

Real Madrid keypti Huijsen fyrir 50 milljónir punda í fyrrasumar og er kantmaðurinn Rayan eftirsóttur en riftunarákvæðið hans hljóðar upp á 130 milljónir punda.

Bournemouth er sagt vilja setja um 70 til 80 milljón punda ákvæði í samninginn hjá Scott.

Scott er 22 ára gamall og lék mikilvægt hlutverk undir stjórn Andoni Iraola á nýliðinni leiktíð.

   14.05.2026 13:04
Þessir eru tilnefndir sem besti ungi leikmaður tímabilsins

Slapp
banner