Fotbolti.net
14.05.26 - 13:04
Brynjar Ingi Erluson

Þessir eru tilnefndir sem besti ungi leikmaður tímabilsins

Rayan Cherki er tilnefndur

Rayan Cherki er tilnefndur

Canon

Mynd: EPA

Átta leikmenn hafa verið tilnefndir sem besti ungi leikmaður tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni.
Þrír Arsenal-menn koma til greina sem leikmaður tímabilsins
TENGT EFNI

Þrír Arsenal-menn koma til greina sem leikmaður tímabilsins

Manchester City á tvo fulltrúa í þeim Rayan Cherki og Nico O'Reilly.

Cherki hefur verið afar líflegur á fyrsta tímabili sínu í City-treyjunni og þá er hinn uppaldi O'Reilly búinn að vera stórkostlegur, en hann hefur mest verið notaður í bakverði og á miðju ásamt því að hafa spilað á kanti.

Michael Kayode er fulltrúi Brentford og þá er hinn eftirsótti Mateus Fernandes einnig á listanum. Hann hefur verið einn af fáum ljósum punktum í liði West Ham.

Bournemouth á tvo leikmenn í þeim Alex Scott og Eli Junior Kroupi, og þá eru Lewis Hall hjá Newcastle og Kobbie Mainoo, miðjumaður Manchester United einnig tilnefndir.

Þessir eru tilnefndir:
Alex Scott (Bournemouth)
Eli Junior Kroupi (Bournemouth)
Michael Kayode (Brentford)
Nico O'Reilly (Man City)
Rayan Cherki (Man City)
Kobbie Mainoo (Man Utd)
Lewis Hall (Newcastle)
Mateus Fernandes (West Ham)

Kobbie Mainoo hefur verið frábær seinni hluta tímabilsins

Kobbie Mainoo hefur verið frábær seinni hluta tímabilsins

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.