Ítalska spútnik félagið Como er í viðræðum við tvo brasilíska bakverði til að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir komandi tímabil.
Lærlingar Cesc Fábregas komust óvænt í Meistaradeildina þegar þeir náðu fjórða sætinu í Serie A í lokaumferð deildartímabilsins og þurfa á liðsstyrk að halda.
Como er á höttunum eftir Yan Couto sem er 24 ára gamall og á þrjá A-landsleiki að baki fyrir Brasilíu. Hann er samningsbundinn Borussia Dortmund en er ekki með fast sæti í byrjunarliðinu.
Couto gekk til liðs við Manchester City þegar hann var 18 ára gamall en tókst ekki að brjóta sér leið inn í byrjunarliðið. Hann gerði flotta hluti á láni hjá Girona áður en Dortmund keypti hann fyrir rúmlega 30 milljónir evra.
Couto er hægri bakvörður en Como er einnig að reyna við vinstri bakvörðinn Kaiki, sem er 23 ára gamall og leikur fyrir Cruzeiro í heimalandinu. Kaiki á einn A-landsleik að baki fyrir Brasilíu.
Kaiki gæti tekið stöðu Alberto Moreno í leikmannahópi Como á meðan Couto myndi líklegast ganga beint inn í byrjunarliðið enda sárvantar liðinu meiri gæði í hægri bakvarðarstöðuna.
07.06.2026 07:30
Forseti Como: Boltinn er hjá Real Madrid




