Fotbolti.net
10.07.26 - 21:45
Ívan Guðjón Baldursson

Courtois: Leið eins og ég gæti spilað áfram

Courtois: Leið eins og ég gæti spilað áfram
Canon

Mynd: EPA

Belgíski landsliðsmarkvörðurinn Thibaut Courtois fann fyrir vöðvameiðslum í mikilvægum slag gegn Evrópumeisturum Spánar í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins fyrr í kvöld.
Courtois er einn af bestu markvörðum heims en virtist togna framan á læri. Hann segist hafa viljað halda leik áfram en landsliðsþjálfarinn kaus að skipta honum útaf fyrir Senne Lammens, markvörð Manchester United.

Staðan var 1-1 þegar Lammens tók stöðu Courtois á milli stanganna en Spánverjar skoruðu sigurmarkið á lokamínútunum, eftir mistök Lammens sem réði ekki nógu vel við langskot frá Pau Cubarsí.

„Ég fann fyrir miklum sársauka framan á læri en mér leið eins og ég gæti spilað áfram. Eina sem ég gat ekki framkvæmt voru löng spörk upp völlinn. Þjálfarinn ákvað að skipta mér útaf en það er ekkert vandamál fyrir mig, liðsheildin skiptir öllu," sagði Courtois eftir lokaflautið.

Courtois fór meiddur af velli
TENGT EFNI

Courtois fór meiddur af velli

Courtois: Leið eins og ég gæti spilað áfram
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.