10.08.04 - 18:34
Elvar Geir Magnússon
Francis Jeffers til Charlton (Staðfest)

Francis Jeffers í búningi Arsenal, en hann fékk að klæðast honum sjaldnar en vonir stóðu til.

Francis Jeffers í búningi Arsenal, en hann fékk að klæðast honum sjaldnar en vonir stóðu til.

Liðsmenn Charlton Athletic ætla sér greinilega ekki að lenda neðar en í fyrra. Liðið fékk fyrr í dag Danny Murphy frá Liverpool sem margir vilja meina að sé einn vanmetnasti leikmaður enska boltans. Svo var að berast staðfesting á því að liðið hefur keypt sóknarmanninn Francis Jeffers frá nágrönnum sínum í Arsenal fyrir 2,6 milljónir punda.
Francis Jeffers var ekki í áætlunum Arsene Wenger og hefur skrifað undir tveggja ára samning við Charlton. Jeffers var hjá sínu fyrrum félagi, Everton, í láni síðasta tímabil án þess að ná að finna sitt gamla form. Hann snéri síðan aftur til Arsenal en möguleikar hans á sæti í liðinu voru minni en nokkru sinni áður.
"Arsenal borgaði mikið fyrir hann á sínum tíma en samkeppnin er mikil hjá liðinu og hann varð undir. Hann þurfti tilbreytingu og er einmitt leikmaður sem ég vill kaupa. Ég tel að hann sé reiður og hungraður eftir undanfarin ár. Ég vona að hann komi ferli sínum aftur á skrið hjá okkur." sagði Alan Curbishley stjóri Charlton um hinn 23 ára Jeffers.