Íslenski landsliðsmaðurinn Ari Freyr Skúlason spilaði allan leikinn í 2-1 tapi Oostende gegn Beerschot í 1. umferð belgísku deildarinnar í dag.
Oostende hafnaði í 15. sæti deildarinnar á síðasta tímabili og var félagið á barmi gjaldþrots áður en bandaríski fjárfestingahópurinn Pacific Media Group keypti félagið og bjargaði því þannig frá falli niður í neðstu deild.
Ari Freyr er á mála hjá félaginu og gegnir þar lykilhlutverki en hann spilaði allan leikinn í fyrstu umferð belgísku deildarinnar í dag.
Oostende tapaði 2-1 gegn Beerschot en næsti leikur Oostende er gegn Charleroi þann 15. ágúst næstkomandi.
Athugasemdir