10.09.04 - 12:01
Elvar Geir Magnússon
Malky Mackay til West Ham (Staðfest)




Skoski varnarmaðurinn Malky Mackay er genginn til liðs við West Ham frá Norwich á 300.000 pund. Þessi 32 ára leikmaður lék með Norwich í næstum sex ár og spilaði lykilhlutverk með liðinu þegar það sigraði ensku 1.deildina á síðasta keppnistímabili en hann var m.a. valinn í lið ársins í deildinni.
"Styrkur hans og reynsla munu koma sér vel í titilbaráttunni." sagði framkvæmdarstjóri West Ham, Alan Pardew, en hann stefnir á endurkomu liðsins í úrvalsdeildina. Christian Dailly leikur ekki með West Ham í langan tíma og því gott fyrir liðið að fá Mackay.
Nigel Worthington framkvæmdarstjóri Norwich hafði þetta að segja: "Ég óska Mackay alls hins besta hjá West Ham. Hann hefur spilað stórt hlutverk í því sem við höfum afrekað ."
Nigel Worthington framkvæmdarstjóri Norwich hafði þetta að segja: "Ég óska Mackay alls hins besta hjá West Ham. Hann hefur spilað stórt hlutverk í því sem við höfum afrekað ."
