Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
„Smá högg í vetur þegar ég var ein af þeim elstu 22 ára"
„Sigurmark í lokin gerir þetta ennþá sætara“
Mist lagði upp sigurmarkið - „Þetta var nákvæm hreinsun“
Hannah: Rúsínan í pylsuendanum
Arna Sif: Gerist eiginlega ekki verra
Hólmar: Hefur mikla þýðingu fyrir alla í kringum Val
Aron Sig: Þess vegna ertu í þessu
Hemmi: Umræðan var óþarflega neikvæð og leiðinleg
Óskar Hrafn: Hef lítinn sem engan smekk fyrir Val
Best í Mjólkurbikarnum: Barðist um milljónir á Netflix
Óskar Smári: Þær geta fokking djöflast þessar stelpur
Birna Jóhanns: Við náðum svo að setja þetta mark í lokin
„Hefði verið extra sætt fyrir hana að ná að setja hann“
Matthías: Ég er stoltur að hafa lifað það af
Agla María fagnaði 250 leikja áfanga með sigri - „Stór áfangi fyrir mig“
Adam Páls: Nú er farið að taka okkur alvarlega
Hemmi Hreiðars: Það var bara samningsatriði
Siggi Höskulds: Skoruðum löglegt mark
Óskar Hrafn: Meiri taugaspenna að hafa KR áhorfendur bak við sig
Jökull: Það er enginn ánægður í okkar klefa með frammistöðuna
   þri 10. september 2019 21:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Elbasan, Albanía
Raggi Sig: Okkur fannst við vera með þá
Icelandair
Ragnar Sigurðsson
Ragnar Sigurðsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ragnar Sigurðsson, varnarmaður íslenska landsliðsins, var afar svekktur eftir 4-2 tapið gegn Albaníu en átti erfitt með að útskýra tapið.

Lestu um leikinn: Albanía 4 -  2 Ísland

Íslenska liðið kom tvisvar til baka í leiknum en í stöðunni 2-2 virtist þó allt hrynja þótt það virtist allt vera að falla með Íslandi.


„Ég veit ekki alveg hvað gerðist. Við vorum ekki nógu góðir í dag og áttum ekki skilið að vinna þetta," sagði Ragnar.

„Okkur leið vel og vorum tilbúnir í þetta en þetta virkar oft eins og við vorum ekki tilbúnir í hinn leikinn en vinnum samt 3-0. Svona er þetta stundum."

„Okkur fannst við vera með þá og þeir virkuðu þreyttir. Svona gerist stundum í fótbolta. Við vildum vinna þetta og fundum í 2-2 að við vorum með þetta en fáum svo tvö mörk."


Ragnar og strákarnir hafa enn trú á verkefninu þrátt fyrir tapið en ljóst er að leiðin á EM er afar erfið úr þessu. Tyrkir og Frakkar unnu sína leiki en næsti leikur Íslands er gegn Frökkum á Laugardalsvelli.

„Ég á eftir að horfa á þetta og erfitt að segja núna. Við höldum bara áfram og vinnum næsta leik," sagði Ragnar í lokin.
Slapp
banner
banner
banner