10.11.26 - 22:30
Brynjar Ingi Erluson
Yfirgefur landsliðið af persónulegum ástæðum - „Bið um að einkalíf mitt verði virt“

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Nicolo Zaniolo, leikmaður Udinese og ítalska landsliðsins, hefur yfirgefið landsliðshópinn af persónulegum ástæðum.
Roberto Mancini valdi Zaniolo í landsliðshópinn, en hann hafði ekki leikið með ítalska landsliðinu í tvö ár.
Zaniolo hefur verið að standa sig vel með Udinese á tímabilinu og hlakkaði til að snúa aftur í landsliðstreyjuna, en sú endurkoma verður að bíða betri tíma.
Hann yfirgaf æfingasvæði landsliðsins í dag af persónulegum ástæðum og hefur óskað eftir því að einkalíf hans verði virt.
„Það var ekki auðvelt að yfirgefa æfingasvæðið, en ég tók þessa ákvörðun af persónulegum ástæðum. Að klæðast bláu treyjunni fyllir mig alltaf stolti. Ég vil þakka þjálfaranum, starfsliðinu og liðsfélögum mínum fyrir stuðninginn, en ég bið núna um að einkalíf mitt verði virt og að ekki sé lagt trúnað á frásagnir af atburðum sem ég tengist ekki. Ég ber þessa treyju í brjósti mínu og mun halda áfram að leggja hart að mér á hverjum degi til að klæðast treyjunni á ný,“ sagði Zaniolo á Instagram.
Zaniolo, sem er 27 ára gamall, á nítján landsleiki og tvö mörk fyrir landsliðið.