11.11.26 - 09:34
Kári Snorrason
Arsenal hefur áhuga á Endrick - Snýr De Bruyne aftur til Englands?

Endrick er ein af vonarstjörnum Brasilíu.

Mynd: EPA

Man Utd vill þétta raðirnar.

Mynd: EPA

Áhugi á Frimpong í Sádí.

Mynd: EPA

Gekk í raðir Napoli fyrir rúmu ári síðan.

Englandsmeistararnir horfa í kringum sig, Everton gæti boðið í Kevin de Bruyne og Jeremie Frimpong er eftirsóttur í Sádí-Arabíu. Þetta og margt fleira í slúðurpakka dagsins.
Arsenal skoðar möguleikann að fá brasilíska sóknarmanninn Endrick (20) frá Real Madrid í janúar. Andrea Berta, yfirmaður fótboltamála hjá Arsenal, er í góðu sambandi við umboðsskrifstofuna sem sér um mál Brassans. (talkSPORT)
Roma og Sporting vilja sömuleiðis fá Endrick (20) en að láni út tímabilið. Endrick vill þó vinna sér sæti hjá Real Madrid. (AS)
Man Utd hefur bætt varnarmönnunum Nathan Collins (25) hjá Brentford og Calvin Bassey (26) hjá Fulham á óskalistann yfir leikmenn sem félagið horfir til í janúar. (Daily Mail)
Arsenal skoðar einnig Alex Baena (25) leikmann Atlético Madrid, Antonio Nusa (21) leikmann RB Leipzig og Eli Junior Kroupi (20) leikmann Bournemouth til að styrkja sig á köntunum. (The Independent)
Hollenski hægri bakvörðurinn Jeremie Frimpong (25) verður áfram hjá Liverpool út tímabilið þrátt fyrir orðróm um félagaskipti til Sádi-Arabíu. (TEAMtalk)
Sádí-arabíska félagið Al-Hilal hefur áhuga á Jeremie Frimpong (25). Liverpool ætlar að halda honum í janúar en eyrun eru opin ef veglegt tilboð berst næsta sumar. (Football Insider)
Ian Maatsen (24), Emiliano Buendía (29), Amadou Onana (25) og Ross Barkley (32) eru allir á leið að skrifa undir nýja samninga við Aston Villa. (The Telegraph)
Newcastle hefur engin áform um að fá enska framherjann Ivan Toney (30) aftur til félagsins. Toney var á mála hjá Newcastle frá 2015 til 2018 og lék undir stjórn Matthias Jaissle, núverandi stjóra Newcastle, hjá Al-Ahli. (The i Paper)
Newcastle, Sunderland og Leeds fylgjast með króatíska framherjanum Dion Beljo (24), leikmanni Dinamo Zagreb. Man Utd, Brighton, Tottenham og Everton hafa einnig augastað á honum. (TEAMtalk)
Chelsea gæti lánað enska kantmanninn Jamie Gittens (22) í janúar. Nokkur félög í ensku úrvalsdeildinni hafa áhuga á honum. (Football Insider)
Everton gæti komið með óvænt tilboð í belgíska miðjumanninn Kevin De Bruyne (35) sem er nú á mála hjá Napoli. (Calciomercato)
Newcastle og Leeds fylgjast grannt með enska miðjumanninum Jack Rudoni (25) hjá Coventry. (TEAMtalk)
Fulham og Coventry vilja bæði fá spænska kantmanninn Rodrigo Riquelme (26) frá Real Betis. (4-4-2.ch)
Fiorentina hyggst láta spænska markvörðinn David de Gea (36) fara þegar samningur hans rennur út á næsta ári. (Corriere dello Sport)